Smart ID hugbúnaður
Einstaklingar - Þú þarft Smart ID hugbúnað til þess að lesa rafrænu skilríkin þín í kortalesaranum
Þegar þú notar rafræn skilríki á korti, setur þú kortið í kortalesarann og Smart ID hugbúnaðurinn les skilríkin og flytur þau inn í tölvuna.
Hér getur þú sótt Smart ID fyrir eftirfarandi stýrikerfi:
Windows stýrikerfi: Nexus Smart ID (útgáfa 1.8.11.0)
Mac: Ekki komin útgáfa sem styður Mac
Linux: Ekki komin útgáfa sem styður Linux
- Fyrst þarf að sækja Smart ID hugbúnaðinn.
- Opnaðu Microsoft Store í tölvunni þinni og settu inn í leitarstikuna "Nexus Smart ID".
- Smelltu á "get" og svo "install"
- Tvísmelltu á forritið þar sem þú vistaðir það og keyrðu það upp. Notaðu sjálfgefnar stillingar.
- Í sumum tilfellum þarf að endurræsa tölvuna eftir uppsetningu.
Einnig þarf að sækja Minidriver fyrir kortin:
Windows stýrikerfi: SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6
Mac: Væntanlegt
Linux: Ekki komin útgáfa sem styður Linux
- Opna SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6.ms
- Veldu Next
- Veldu "I accept the terms in the license agreement" og smelltu á Next
- Að lokum smellirðu á Install og Yes til þess að leyfa windows að klára uppsetninguna.
Ef þú lendir í vandræðum með uppsetninguna er þjónustuverið okkar opið frá 9 til 16 alla virka daga. Þú getur hringt í síma 530 0000 eða sent fyrirspurn hér á vefsíðunni þegar þjónustuverið er lokað.