Ekki láta rafræna þig!
Mikilvægar upplýsingar:
- Auðkenni óskar ALDREI eftir auðkenningu eða undirritun nema að þinni beiðni.
- Ef þú hefur fengið slík skilaboð án þess að eiga frumkvæðið þá skaltu hunsa þau.
- Auðkenni notar aðeins landshöfuðlénið .is (ekki .com, .net eða nokkuð annað).
- Mundu að þú átt alltaf að eiga upphafið að innskráningu og ALDREI slá inn PIN-númerið þitt ef þú ert ekki viss.
- Ef þú telur þig hafa lent í rafráni þá skaltu tafarlaust hafa samband við þjónustuveitanda (t.d. fjármálafyrirtæki), tilkynna atvikið til lögreglu og Cert-IS.
Rafræn skilríki eru persónuskilríki sem notuð eru í rafrænum heimi. Þau létta okkur lífið og eru einföld í notkun. Þau gera þér kleift að stunda bankaviðskipti, undirrita mikilvæg gögn eins og lánasamninga, fá aðgang að heilbrigðisþjónustu á vefnum og margt fleira.
Það er mikilvægt að þú notir rafrænu skilríkin þín á öruggan hátt og sért alveg viss þegar þú slærð inn PIN-númerið þitt.
1. Lestu vel beiðnir um rafræna auðkenningu
Athugaðu að upplýsingarnar sem koma í símann þinn séu í samræmi við upplýsingarnar sem þjónustuveitandi gefur upp á innskráningarsíðunni. Margir þjónustuveitendur nota tölur til samanburðar með texta. Skoðaðu vel frá hvaða aðila beiðnin kemur og í hvaða tilgangi.
2. Ekki samþykkja innskráningu sem þú kannast ekki við
Þú ættir alltaf að eiga upphafið að innskráningunni með rafrænum skilríkjum. Ef innskráningarbeiðni sem þú kannast ekki við kemur í símann þinn þá skaltu ekki samþykkja beiðnina.
3. Hættu frekar við ef þú ert ekki viss
Það er mjög mikilvægt að vera alveg viss áður en þú slærð inn PIN-númerið þitt. Ef þú ert í einhverjum vafa þá skaltu hætta við. Það er alltaf hægt að byrja aftur.
Þú getur skoðað notkun þína á rafrænu skilríkjunum með því að skrá þig inn á Mitt.audkenni.is
Ef þú telur þig hafa lent í rafráni þá skaltu:
- Hafa tafarlaust samband við þjónustuveitanda t.d. fjármálafyrirtæki
- Tilkynna atvikið til lögreglu: abendingar@lrh.is
- Tilkynna atvikið til Cert-IS
Viltu vita meira um netöryggi?
Landsbankinn
Íslandsbanki
Arion banki
Island.is