Smart ID hugbúnaður

Fyrirtæki - Þú þarft Smart ID hugbúnað til þess að lesa rafrænu skilríkin þín í kortalesaranum.

Þegar þú notar rafræn skilríki á korti, setur þú kortið í kortalesarann og Smart ID hugbúnaðurinn les skilríkin og flytur þau inn í tölvuna.

Hér getur þú sótt Smart ID fyrir eftirfarandi stýrikerfi:
Windows stýrikerfi: Smart ID útgáfa 1.8.11.0
Mac: Ekki komin útgáfa sem styður Mac
Linux: Ekki komin útgáfa sem styður Linux

  1. Fyrst þarf að sækja Smart ID hugbúnaðinn. 
  2. Veldu "Save As..." og vistaðu hugbúnaðinn á tölvuna þína.
  3. Tvísmelltu á forritið þar sem þú vistaðir það og keyrðu það upp. Notaðu sjálfgefnar stillingar.
  4. Í sumum tilfellum þarf að endurræsa tölvuna eftir uppsetningu.

Einnig þarf að sækja Minidriver fyrir kortin:

Windows stýrikerfi: SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6
Mac: SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6
Linux: SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6

  1. Opna SafeNet-Minidriver-x64-10.8-R6.ms
  2. Veldu Next
  3. Veldu "I accept the terms in the license agreement" og smelltu á Next
  4. Að lokum smellirðu á Install og Yes til þess að leyfa windows að klára uppsetninguna.

Ef þú lendir í vandræðum með uppsetninguna er þjónustuverið okkar opið frá 9 til 16 alla virka daga. Þú getur hringt í síma 530 0000 eða sent fyrirspurn hér á vefsíðunni þegar þjónustuverið er lokað.