Hvað eru einkaskilríki?

Einstaklingar geta keypt einkaskilríki sem eru kjörin fyrir öruggari innskráningar á vefsvæði og til undirritunar rafrænna skjala.

Skilríkin eru gefin út undir Íslandsrót af Auðkenni og koma á plastkortum í sömu stærð og greiðslukort. Á kortinu er örgjörvi sem hýsir skilríkin á mjög öruggan máta. Í örgjörvanum eru tvenn skilríki, auðkenningarskilríki og undirritunarskilríki. Skilríkin eru fullgild sem þýðir að þau fylgja ákveðnum ströngum öryggiskröfum í framleiðslu og afhendingarferlum.


Rafræn skjöl undirrituð með fullgildum rafrænum undirritunarskilríkjum standa jafnt að vígi lagalega eins og skjöl undirrituð með penna.

Einkaskilríki

Besta leiðin til að sjá hvort að þú ert með nýju eða gömlu týpuna af korti er að kíkja aftan á kortið sjálft. Ef persónuupplýsingar eru prentaðar aftan á kortið, er það gamla týpan og þá velurðu innskráningu með gamla kortinu. Ef engar persónuupplýsingar er að sjá aftan á kortinu ertu með nýju týpuna af kortinu.

Kort-bakhlid

Nexus Personal hugbúnaðurinn er notaður fyrir innskráningu með gömlu kortunum – sem voru gefin út fyrir 15. september 2022. SmartID er notaður fyrir innskráningu með nýrri kortum sem gefin voru út eftir þann tíma.

Besta leiðin til að sjá hvort að þú ert með nýju eða gömlu týpuna af korti er að kíkja aftan á kortið sjálft. Ef persónuupplýsingar eru prentaðar aftan á kortið, er það gamla týpan og þá velurðu innskráningu með gamla kortinu. Ef engar persónuupplýsingar er að sjá aftan á kortinu ertu með nýju týpuna af kortinu.

Kort-bakhlid

Einstaklingar geta keypt einkaskilríki sem eru kjörin fyrir öruggari innskráningar á vefsvæði og til undirritunar rafrænna skjala.

Skilríkin eru gefin út á einstaklinga og á þeim er kennitala og nafn skilríkjahafans.

Ítarlegra svar

Þú sækir um einkaskilríki á vefsíðu Auðkennis hér:

Munurinn er fyrst og fremst formið. Í öllum tilfellum er hægt að nota skilríkin til auðkenningar við innskráningu og við undirritun skjala. Einkaskilríkin eru rafræn skilríki á sérstöku plastkorti. Það er allt og sumt.

Ef þú átt önnur rafræn skilríki getur þú skráð þig inn á mitt.audkenni.is og afturkallað skilríkin þar. Ef þú átt ekki önnur rafræn skilriki getur þú hafðu þá samband við Auðkenni í síma 530-0000 eða farið á næstu skráningastöð svo hægt sé að afturkalla skilríkin.

Nexus Personal hugbúnaðinn geturðu nálgast á vefsíðunni hjá okkur ásamt leiðbeiningum um hvernig þú setur hann upp.

Á kortinu eru tvö rafræn skilríki.
Auðkenningarskilríki - 4 stafa PIN.
Undirritunarskilríki - 6 stafa PIN.

Til þess að nota rafrænu skilríkin þarftu að hafa aðgang að tölvu, kortalesara og sérstökum hugbúnaði fyrir skilríkin.

Athugaðu að þegar skilríkin eru notuð í fyrsta sinn mun tölvan biðja um heimild til þess að setja inn skilríkjakeðju Íslandsrótar sem er að finna á kortinu. Þessari spurningu þarf að svara játandi og mun skilríkjakeðjan þá verða sett upp á vélinni.

Þú getur prófað virkni Nexus hugbúnaðarins og kortalesarans með því að fylgja eftirfarandi skrefum:

  1. Fullvissaðu þig um að kortalesarinn sé tengdur við tölvuna.
  2. Stingdu kortinu með rafrænu skilríkjunum í lesarann.
  3. Nexus táknið á stjórnstiku "snýst" á meðan kortið er lesið. Athugið, þetta getur tekið smá stund í fyrsta sinn.
  4. Ef þú opnar Personal forritið, ætti að standa í hvíta glugganum ,,Fullgilt Auðkenni".
  5. Prófaðu nú að nota kortið á vefsíðu. (ATH. að PIN til auðkenningar er 4 tölustafir)
  6. Gættu að því að í fyrsta skipti sem þú reynir að nota skilríkin á vefsíðu í vafra mun koma upp beiðni um að heimila Nexus Personal Plugout sem þú verður að samþykkja. Þá geturðu endurhlaðið síðunni og allt ætti að virka. 

Oftast dugir að slökkva og kveikja á Nexus Personal forritinu.

  1. Hægri smelltu á Nexus Personal táknmyndina (rauður hringur með hvítum karli) sem þú finnur á botnstikunni (task bar) í horninu niðri til hægri.
  2. Veldu Hætta. Þá slökknar á forritinu og táknmyndin hverfur.
  3. Til að ræsa forritið aftur í Windows 7 eða eldri stýrikerfum, ferð þú í Start (neðst til vinstri) og svo í All Programs og finnur þar Personal möppuna og smellir á hana og smellir svo á Personal táknið. 
  4. Til að ræsa forritið aftur í Windows 8 eða nýrri stýrikerfum, smellir þú á Windows hnappinn, skrifar Personal og smellir á Personal táknið.
  5. Þá keyrir forritið sig upp og táknmyndin á að birtast aftur á botnstikunni niðri í hægra horninu.

Ef rangt PIN númer er slegið inn oftar en 4x eyðileggjast skilríkin.
Þá þarf að sækja um að fá nýtt kort með nýjum skilríkjum.

PUK-númer voru notuð í virkjunarferlinu á eldri gerðum korta sem hýstu rafræn skilríki.
Notkun þeirra korta var hætt 15.09.2022.
PUK númer eru ekki notuð lengur.

Þú notar mismunandi aðferðir eftir því hvort skilríkin eru í farsímanum eða á Auðkenniskorti.

Til þess að athuga hvort þú sért með skilríki í farsímanum þínum fylgirðu leiðbeiningum á prófunarsíðunni okkar fyrir skilríki í farsímum.

Til þess að athuga hvort þú sért með virk skilríki á Auðkenniskortinu þínu, þarftu að hafa aðgang að kortalesara ásamt því að setja upp Nexus Personal hugbúnað í tölvuna. Þú getur gengið úr skugga um hvort kortið sé útrunnið með að lesa gildisdagsetningu á kortinu sjálfu. Leiðbeiningar fyrir skilríki á kortum.

Það eru ekki rafræn skilríki á öllum útgefnum debetkortum. Ef þú vilt vita hvort það eru rafræn skilríki á debetkortinu þínu borgar sig að hafa samband við þinn viðskiptabanka eða sparisjóð.

Til að geta notað rafræn skilríki á Auðkenniskortum þarf lítið tæki sem nefnt er kortalesari en hann les kortið og tengir það við tölvuna.