Best er að sækja PUK númer fyrir rafræn skilríki á Auðkenniskortum á mínum síðum Auðkennis.
https://mitt.audkenni.is
Til að skrá sig inn á mínar síður þarf rafræn skilríki á farsíma, Auðkennisappi eða korti.
Eftir innskráningu birtist hnappurinn "Kort með PUK" ef viðkomandi á til kort í kerfinu sem á eftir að virkja eða kort sem ekki eru útrunnin.
Einnig er hægt að sækja PUK númer í netbanka.
Þú skráir þig inn í þinn persónulega netbanka og velur "Stillingar" í valmyndinni vinstra megin á síðunni.
Eftir að stillingasíðan opnast velur þú "Sækja PUK númer".
Næst smellir þú á "STARFSSKILRÍKI".
(Athugaðu að þetta á líka við þó verið sé að sækja PUK númer fyrir einkaskilríki.)
Þá eiga að birtast 8 tölustafir sem er PUK númerið fyrir viðkomandi kort.