Sjálf­skráning

Sjálfskráningin er bæði einföld og þægileg en til þess þarftu að:

  • Sækja Auðkennisappið í App Store eða Google Play.

  • Eiga íslenskt vegabréf eða íslensk nafnskírteini í gildi.

  • Hafa afnot af síma eða snjalltæki með NFC stuðningi.

  • Hafa náð 13 ára aldri. Yngri en 18 ára þurfa undirritun forsjáraðila.

Svona virkar tæknin í sjálfs­afgreiðslunni:
Þegar þú virkjar raf­ræn skil­ríki í Auð­kennisappinu með sjálfs­kráningu þá er notast við andlits­greiningu. Mynda­vélin í símanum þínum skannar and­litið þitt og þar með líf­kenni þín sem eru svo borin saman við vega­bréfið/nafnskírteinið þitt.

Athugið:
Við andlitsskönnun í sjálfskráningarferlinu blikka ljós. Ef þú ert viðkvæm/ur fyrir blikkandi ljósi getur þú mætt á skráningarstöð til þess að fá rafræn skilríki í Auðkennisappið.

Horfðu á myndbandið til að læra hvernig þú útbýrð rafræn skilríki í Auðkennisappinu.

Sjálfskráning með nafnskírteini

Tvær tegundir íslenskra nafnskírteina eru í boði. Nokkur munur er á sjálfskráningarferlinu eftir því hvor tegundin er notuð.

Nafnskírteini sem ferðaskilríki
Þessi tegund nafnskírteinis er með MRZ-rönd á bakhliðinni sem er skönnuð í sjálfskráningarferlinu.

Nafnskírteini sem ferðaskilríki eru með MRZ-rönd á bakhlið sem þarf að skanna.

Nafnskírteini sem ekki er ferðaskilríki
Þessi tegund nafnskírteinis er ekki með MRZ-rönd á bakhliðinni. Því þarf að slá inn CAN-númerið sem er að finna á framhlið nafnskírteinisins.

Á nafskírteinum sem ekki eru ferðaskilrík er slegið inn CAN-númer sem er á framhliðinni.

Svona virkar sjálfskráningin fyrir 13-17 ára

  1. Fyrst þarf að smella á hnappinn Lífkenni

  2. Svo þarf að smella á hnappinn 13-17 ára

  3. Þá er ferið í gegnum sjálfskráningarferlið og PIN-númer valin

  4. Að því loknu þarf að senda hlekk á forsjáraðila um undirritun.

  5. Forsjáraðili hefur 15 mínútur til að undirrita umsóknina rafrænt.

  6. Þegar undirritun er lokið getur ólögráða einstaklingurinn klárað útgáfu skilríkja í sínu snjalltæki.

Ef sjálfskráningin hentar þér ekki þá getur þú mætt á skráningarstöð og fengið útgefin rafræn skilríki í Auðkennisappið.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345