Notkun rafrænna skil­ríkja á SIM-­korti

Svona skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum á SIM-korti

  1. Þú ferð inn á vefsvæði þjónustuveitanda.

  2. Þú slærð símanúmerið þitt inn í innskráningargluggann.

  3. Staðfestingarbeiðni birtist á símanum þínum.

  4. Berðu saman nafn eða númer og staðfestu með því að slá inn PIN-númerið þitt.

  5. Núna ætti þitt svæði hjá þjónustuveitanda að opnast.

  6. Mundu svo að skrá þig út af vefsvæðinu þegar þú hefur lokið erindinu.

Gott að vita:

  • Þú þarft að vera í símasambandi til þess að geta notað rafræn skilríki á SIM-korti.

  • Þú átt alltaf að eiga upphafið að innskráningu, aldrei slá inn PIN-númerið þitt ef þú ert ekki viss.

  • Það er mismunandi milli símafélaga hversu margar tilraunir notandi hefur til að slá inn rétt PIN-númer þegar hann notar rafræn skilríki á SIM-korti – að jafnaði þrjár til fimm.

  • Ef skilríkin læsast eða þú manst ekki PIN-númerið þá þarftu að mæta á skráningarstöð til þess að láta útbúa ný skilríki.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345