Er aðgang­urinn í appinu að renna út?

Rafrænu skilríkin þín gilda í 5 ár. Þegar gildistíminn er að renna út færðu tilkynningu í Auðkennisappið þitt.

Það tekur aðeins nokkrar mínútur að virkja nýjan aðgang og þú getur notað sjálfskráningu ef þú átt íslenskt vegabréf í gildi. Einnig er hægt að mæta á skráningarstöð og fá útgefin rafræn skilríki í Auðkennisappið.

Þú færð tilkynningar með góðum fyrirvara:

  • Fyrsta tilkynning kemur 90 dögum áður en gildistíminn rennur út.

  • Reglulegar áminningar koma í kjölfarið.

  • Síðasta tilkynning kemur 3 dögum áður en appið hættir að virka.

Hér getur þú séð upplýsingar um gildistíma:

  • Á forsíðu appsins fyrir neðan nafnið þitt.

  • Undir Notendaupplýsingar í valmynd appsins.

  • Á mitt.audkenni.is

Áður en þú byrjar sjálfskráningu

Gakktu úr skugga um að:

  • Þú sért með nýjustu útgáfu appsins.

  • Snjallsíminn þinn sé með nýlega útgáfu af stýrikerfi.

  • Þú sért með íslenskt vegabréf í gildi við höndina.

  • Þú sért í netsambandi.

Mikilvægt: Ekki hefja ferlið nema þú getir lokið því í einni lotu.

Svona virkjar þú nýjan aðgang með sjálfskráningu:

  1. Opnaðu Auðkennisappið.

  2. Smelltu á tilkynninguna Virkja nýjan aðgang.

  3. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

  4. Staðfestu auðkenningu þegar beðið er um það.

  5. Þú færð staðfestingu þegar endurnýjun er lokið.

Allt ferlið tekur yfirleitt örfáar mínútur. Smelltu hér til að lesa ítarlegri leiðbeiningar.

Svona er ferlið á skráningarstöð:

  1. Skráningarstöðvar eru staðsettar um allt land, smelltu hér til að sjá kort.

  2. Hafðu með þér persónuskilríki, smelltu hér til að fá upplýsingar um öll leyfð persónuskilríki.

  3. Athugaðu hvort þú sért með nýjustu útgáfu af Auðkennisappinu, ef ekki þá skaltu uppfæra.

  4. Athugaðu hvort þú sért með nýlega útgáfu af stýrikerfi í snjalltækinu þínu.

  5. Vertu með snjalltækið með þér þegar þú mætir á skráningarstöðina.

Ef rafrænu skilríkin þín renna út áður en ný eru virkjuð:

  • Þá getur þú ekki notað Auðkennisappið.

  • Ef þú átt íslenskt vegabréf í gildi getur þú virkjað nýjan aðgang með sjálfskráningu.

  • Þú getur mætt skráningarstöð með leyfð persónuskilríki.

Tæknikröfur

Til að tryggja örugga notkun þarf:

Ef tækið þitt styður ekki lengur nýjustu útgáfu gæti verið nauðsynlegt að nota nýrra tæki.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345