Tegundir rafrænna skilríkja
Auðkenni býður einstaklingum upp á tvær megintegundir rafrænna skilríkja:
Rafræn skilríki á SIM-korti, sem tengjast íslensku símanúmeri, hafa verið í boði í mörg ár og eru flestum kunn. Mæta þarf á skráningarstöð til að fá útgefin rafræn skilríki á SIM-kort.
Auðkennisappið kom hins vegar út árið 2021 og er ný kynslóð rafrænna skilríkja, appið tengist ekki símanúmeri en nettenging er nauðsynleg. Appið er í stöðugri þróun og nú geta þeir sem eiga íslenskt vegabréf virkjað það í sjálfsafgreiðslu, hvar og hvenær sem er.
Tegundirnar tvær eru sambærilegar, en þó er munur á þeim. Eins og staðan er nú mælum við með að notendur eigi báðar tegundir, þar sem annað hvort síma- eða netkerfi getur verið óvirkt á tilteknum tíma eða svæði. Einnig gæti þjónustuveitandi aðeins boðið upp á innskráningu með annarri tegundinni.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helsta muninn á milli tegundanna:

Eins og kom fram hefur komið er hægt að virkja Auðkennisappið með sjálfskráningu en rafræn skilríki á SIM-korti eru aðeins virkjuð á skráningarstöð. Á skráningarstöðvum er einnig hægt að fá útgefin rafræn skilríki á Auðkennisappið. Alltaf þarf að framvísa leyfðum persónuskilríkjum til að fá útgefin rafræn skilríki.
Athugið!
Auðkenni er undir öllum kringumstæðum óheimilt að afhenda öðrum en skilríkjahafa sjálfum rafræn skilríki.
Til þess að umsækjandi geti fengið útgefin skilríki þarf viðkomandi að komast í gegnum hið hefðbundna afgreiðsluferli, þar sem umsækjandi er m.a. beðinn um að velja sér sér leyninúmer sem enginn annar hefur upplýsingar um. Heimilt er að veita umsækjanda aðstoð aðra en þá sem beinlínis afhjúpar fyrir aðstoðarmanninum hvaða leyninúmer (PIN-númer) umsækjandi velur.
Rafræn skilríki á Auðkenniskorti
Einstaklingar geta einnig fengið útgefin rafræn skilríki á Auðkenniskorti sem er plastkort í sömu stærð og greiðslukort. Þessi kort bera árgjald og þurfa að tengjast PC-tölvum með kortalesara. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um Auðkenniskort.