Nafna­breyt­ingar

Upplýsingar í rafrænum skilríkjum byggjast á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands á útgáfudegi skilríkjanna. Ef einstaklingur gerir breytingar á nafni sínu, bætir við eða tekur út nafn þá birtast þær upplýsingar ekki sjálfkrafa í gildandi skilríkjum heldur þarf að afturkalla skilríkin og fá gefin út ný, með breyttum upplýsingum.

Ef viðkomandi er með íslenskt vegabréf eða íslenskt nafnskírteini er hægt að setja upp Auðkennisappið í sjálfskráningu. Einnig er alltaf hægt að fá útgefin ný rafræn skilríki á skráningarstöð gegn framvísun gildra persónuskilríkja.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345