Til að nýta rafræn skilríki á kortum þarf að tengja kortalesara við tölvuna og setja upp Nexus personal hugbúnaðinn til að lesa kortið. Hér fyrir neðan er listi yfir þau atriði sem huga þarf að.
Kortalesari verður að vera í eða tengdur
tölvunni.
Ef þú ert ekki viss um að lesarinn sé
tengdur eða virki getur þú látið greiningartól Auðkennis skanna vélina þína og
gefa þér skýrslu yfir ástand kortalesara og fleira.
Til þess að lesa kortið í kortalesaranum þarftu að setja upp Nexus Personal forritið. Smelltu með hægri takkanum á músinni á:
Sækja Nexus Personal fyrir Windows
Og veldu að vista uppsetningarforritið á disk tölvunnar, en það er gerirðu með því að velja "Save link as" og velja síðan það svæði á disknum sem þú vilt geyma uppsetningarforritið á - til dæmis á „Desktop“ svæðið.
Eftir að þú hefur vistað uppsetningarforritið, þá þarftu að smella á það og keyra það upp. Eftir keyrslu gætir þú þú verið beðin/n um að endurræsa tölvuna.
Eftir að þú hefur endurræst tölvuna ætti „Personal-táknið“ að sjást á neðstu stikunni á tölvuskjánum. Stingdu kortinu með rafrænu skilríkjunum í lesarann þannig að örgjörvinn snúi upp og að lesaranum.
Þegar kortalesarinn les skilríkin þá ætti „Personal-táknið“ á neðstu stikunni að snúast í hringi.
Næst getur þú prófað að skrá þig inn, t.d. í netbankann þinn eða prófað skilríkin með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Mundu að þú átt aðeins að nota fyrstu 4 tölustafina í PIN númerinu við auðkenningu. Prófa rafræn skilríki á korti.
Ef þetta er ekki að virka og þú ert í vandræðum gæti lausnin verið að keyra greiningartól Auðkennis, en það er lítið forrit framleitt af Auðkenni sem gefur þér ítarlega skýrslu um ástand tölvunnar í samhengi við búnaðinn fyrir rafræn skilríki.
Ef þér tekst ekki að fá rafrænu skilríkin til að virka getur þú hringt í 530 0000 alla virka daga frá 9:00 til 17:00 og fengið ókeypis aðstoð sérfræðinga. Athugið að miðað er við að símtöl taki ekki lengri tíma en tíu mínútur.