Virkjun skilríkja í Auðkennisappi

App web

Því miður er tímabundið lokað fyrir möguleikann að virkja ný skilríki í Auðkennisappi í sjálfsafgreiðslu með skilríkjum á SIM korti.

Fyrir þá sem ekki hafa tök á að koma á afgreiðslustað til að virkja skilríki í appi þá erum við á lokametrunum með uppfærslu á appinu sem gerir einstaklingum kleift að auðkenna sig með lífkennum, hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Ef þú hefur ekki aðgang að skráningarstöð og hefur áhuga á að taka þátt í prófunum þá getur þú sent okkur póst á app@audkenni.is með upplýsingum um fullt nafn, tegund símtæki (IOS/Android) og netfang sem er tengt þínu Apple ID eða Google Play.