Lagalegur fyrirvari vegna netspjalls og spjallmennis Auðkennis
Allar aðgerðir í netspjallinu eru á ábyrgð notanda þess. Gætið þess að fara aldrei frá netspjallinu á meðan það er opið. Notandi ber ábyrgð á að loka síðunni/vafranum þegar netspjallinu er lokið.
Vinnsla persónuupplýsinga sem safnast við notkun netspjalls er nauðsynleg í eftirfarandi tilgangi:
Veita notendum betri þjónustu.
Þróa og þjálfa spjallmennið.
Notendur eru hvattir til þess að kynna sér Persónverndarstefnu Auðkennis.
Öll samskipti gegnum netspjall þ.m.t. þær persónuupplýsingar sem notendur veita, eru vistuð í gagnagrunni Auðkennis og vinnsluaðila.
Vinsamlega sendið ekki viðkvæmar upplýsingar s.s. PIN-númer og viðkvæmar persónuupplýsingar í gegnum spjallið. Kjósi notandinn samt sem áður að senda viðkvæmar persónuupplýsingar í gegnum netspjallið veitir hann með því skýrt samþykki sitt fyrir því að þær upplýsingar verði unnar á framangreindan hátt af Auðkenni.
Óheimilt er að endurbirta þær upplýsingar sem fram koma í netspjalli, dreifa þeim, fjölfalda eða afrita þær með nokkrum hætti. Þá er jafnframt óheimilt að birta ólögmætt eða ósæmilegt efni í netspjalli.
Auðkenni ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum úr netspjalli, né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á netspjalli Auðkennis. Þá ber Auðkenni ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota netspjall Auðkennis.