Fræðsla til barna um vinnslu persónuupplýsinga í Auðkennisappi
Persónuupplýsingar eru allar upplýsingar sem hægt er að tengja við þig, t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, ljósmynd eða upptaka af þér. Persónuupplýsingar eru upplýsingar um fólk, ekki fyrirtæki eða dýr. Persónuupplýsingarnar þínar og réttur þinn til einkalífs njóta verndar samkvæmt persónuverndarlögum, stjórnarskránni og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Auðkenni ber ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga í starfsemi félagsins sé bæði í samræmi við lög.
Vinnsla persónuupplýsinga um börn fer fram ef hún er nauðsynleg til að framkvæma umbeðna þjónustu t.d. útgáfu rafrænna skilríkja. Foreldrar þurfa að samþykkja umsóknir barna undir18 ára um rafræn og ef börn ætla að nýta sjálfskráningu í appinu þarf foreldri að samþykkja vinnslu lífkennaupplýsinga barnsins áður en hún hefst. Lífkennaupplýsingar eru: persónuupplýsingar sem við fáum í gegnum tækni og tengjast útliti eða líffræðilegum eiginleikum fólks og hjálpa okkur að staðfesta hver er á bakvið skjáinn. Þetta geta verið til dæmis myndir eða fingraför
Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir við meðferð persónuupplýsinga þinna hjá Auðkenni máttu alltaf hafa samband við okkur
Auðkenni ehf. – persónuvernd
Katrínartúni 4, 105 Reykjavík
Sími: 530 0000
Netfang: personuvernd@audkenni.is
Allir eiga rétt á að hafa samband við Persónuverndar ef þeir telja að ekki sé farið rétt með persónuupplýsingarnar þeirra. Það er gert með því að senda tölvupóst á netfangið postur@personuvernd.is (mailto:postur@personuvernd.is). Nánari upplýsingar má finna á vef Persónuverndar, www.personuvernd.is
Þú átt rétt á að vita:
Hvort fyrirtæki, stofnanir eða aðrir safna eða nota persónuupplýsingar um þig
Til þess að geta veitt þjónustu þarf Auðkenni að safna persónuupplýsingum um alla notendur þessar upplýsingar sem við söfnum eru:
Gögn vegna umsókna um rafræn skilríki og afturköllunar skilríkja s.s. vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini.
Þegar einstaklingur velur að nýta sér sjálfskráningarleið í Auðkennisappinu og samþykkir vinnslu lífkennaupplýsinga Samþykkir hann að við berum saman mynd af andliti umsækjandans og mynd í skilríki auk þess sem við tökum persónuupplýsingar úr vegabréfinu.
Grunnupplýsingar skilríkjahafa og eftir atvikum forráðamanna þeirra, s.s. nafn, kennitala og símanúmer.
Samskipta- og samningsupplýsingar þ.e. persónuupplýsingar sem leiða af samskiptum eða samningum við Auðkenni.
Upplýsingar um notkun skilríkja, s.s. nafn, kennitala, símanúmer, IP-tala.
Tæknilegar upplýsingar, s.s. upplýsingar um tölvur og snjalltæki sem einstaklingur notar til að tengjast kerfum Auðkennis með, s.s. IP-tölur, útgáfu af stýrikerfi og framkvæmdar aðgerðir.
Hvaða upplýsingar um þig eru notaðar og í hvaða tilgangi.
Ástæðan fyrir því að við söfnum þessum upplýsingum er:
Að við þurfum að uppfylla lagalegar kröfur laga sem gilda um starfsemina okkar
Til að uppfylla samningsskyldu um veitta þjónustu.
Fylgjast með virkni kerfa og passa upp á að við sjáum hver gerði hvað og hvenær.
Svara fyrirspurnum um skilríki.
Reyna að koma í veg fyrir eða bregðast við því að einhver noti skilríkin þín í svikatilgangi.
Hvaðan upplýsingarnar komu, ef þær komu ekki frá þér.
Auðkenni fær þessar upplýsingar með mismunandi hætti:
Þær berast frá þjónustuveitendum t.d. bankanum þínum eða þeim heimasíðum sem þú notar skilríkin til að skrá þig inn á og þegar þessir þjónustuveitendur athuga stöðu skilríkja. Þegar persónuupplýsingar berast frá skilríkjahöfum eða símafyrirtækjum þegar skilríki eru virkjuð, afturkölluð, sett í biðstöðu eða renna út.
Einstaklingar sækja sér auðkennisappið og virkja aðgang.
Persónuupplýsingar berast frá skilríkjahöfum (þér) við notkun rafrænna skilríkja á Auðkennisappinu eða demo-Auðkennisappinu.
Einstaklingar hafa samband við Auðkenni t.d. með tölvupósti
Hvort upplýsingunum verður deilt með einhverjum öðrum – og þá hverjum.
Auðkenni deilir upplýsingum með öðrum ef þess þarf. Ástæður þess að við deilum upplýsingum eru;
Ef við þurfum að gera það lögum samkvæmt.
Ef utanaðkomandi aðili kemur að veitingu þjónustunnar, t.d. notumst við við sérstakan hugbúnað til að lesa vegabréf og myndir í sjálfskráningu appsins.
Á grundvelli samnings.
Á grundvelli lögmætra hagsmuna.
Ef þú samþykkir miðlun persónuupplýsinga þú til þriðja aðila, þetta samþykki getur þú gefið með því að samþykkja skilmála appsins.