Rafræn skilríki

Ný kynslóð rafrænna skilríkja

26.3.2026

Um 25 þúsund einstaklingar fá þau SMS-skilaboð frá Auðkenni í mars, apríl og maí 2026, að nú styttist í að rafræn skilríki þeirra á SIM-korti renni út. Skilaboðin berast til notenda 15 dögum áður en þau renna út og svo aftur 7 dögum áður.

Stór hópur fólks mun fá þessi skilaboð á frídögum á komandi páskum þegar lokað er hjá skráningarstöðvum um land allt og jafnframt í þjónustuveri Auðkennis. Ein skráningarstöð er þó opin allan sólarhringinn, sama hvernig viðrar, allt árið um kring, og það er sjálfskráningin í Auðkennisappinu. Að gefnu tilefni er fólk því hvatt til að sækja Auðkennisappið í tæka tíð og virkja það með sjálfskráningu. Appið er ný kynslóð rafrænna skilríkja.

Auðvelt að virkja appið
Fljótlegt er að virkja appið með íslensku vegabréfi. Það tekur aðeins örfáar mínútur og hægt er að vera hvar sem er í heiminum á meðan. Auðkennisappið er einföld og örugg leið til auðkenningar og undirritunar.

Sæktu Auðkennisappið
Rafræn skilríki á SIM-korti hafa verið í boði um árabil, en nú er Auðkennisappið að taka við keflinu. Hægt er að sækja Auðkennisappið á vef Auðkennis eða í Play Store fyrir Android og App Store fyrir Apple. Síðan þarf að virkja það með íslensku vegabréfi. Rafræn skilríki í Auðkennisappinu koma í stað eldri rafrænna skilríkja á SIM-korti.

Persónuskilríki á skráningarstöð
Nauðsynlegt er að framvísa gildum persónuskilríkjum til að fá útgefin rafræn skilríki á skráningarstöð. Smelltu hér til að sjá upplýsingar um öll leyfð persónuskilríki.

Ekki með íslenskt vegabréf?
Þau sem ekki eiga íslenskt vegabréf geta mætt á skráningarstöðvar Auðkennis, en þær eru um land allt.

Hvar eru skráningarstöðvar?
Skráningarstöðvar eru staðsettar um allt land í bönkum, sparisjóðum og fjarskiptafyrirtækjum, en einnig hjá Auðkenni að Katrínartúni 4. Smelltu hér til að fá sjá upplýsingar og staðsetningar allra skráningarstöðva.

Viltu nota skilríki á SIM-korti áfram?
Á skráningarstöðvum er hægt að fá útgefin ný rafræn skilríki á SIM-kort fyrir þau sem vilja frekar nota þá tegund rafrænna skilríkja áfram. Einfalt er að hafa bæði rafræn skilríki á SIM-korti og Auðkennisappið í sama síma eða sitt hvoru tækinu. 

Virkar bæði í síma og spjaldtölvu
Hægt er að hafa Auðkennisappið bæði í farsíma og á spjaldtölvu. Flestir þjónustuveitendur bjóða upp á innskráningu með báðum tegundum rafrænna skilríkja.

Appið endurnýjar ekki SIM-kortið
Mikilvægt er að athuga að þegar Auðkennisappið er virkjað, þá endurnýjast ekki rafrænu skilríkin á SIM-kortinu þar sem um sitt hvora tegundina af rafrænum skilríkjum er að ræða.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345