Eru rafrænu skilríkin þín á SIM-korti að renna út?
Smelltu hér til að lesa frétt.
Nú er tími til að virkja Auðkennisappið
Auðkennisappið mun taka við af rafrænum skilríkjum á SIM-korti sem hafa verið í boði um árabil. Við mælum því með að þú sækir Auðkennisappið og virkir það með íslensku vegabréfi - það tekur aðeins örfáar mínútur og þú getur verið hvar sem er í heiminum. Ef þú átt ekki íslenskt vegabréf getur þú fengið appið virkjað á skráningarstöð gegn framvísun leyfðra persónuskilríkja.

Taktu með þér persónuskilríki í gildi á skráningarstöð
Til þess að fá útgefin rafræn skilríki þarftu að framvísa leyfðum persónuskilríkjum í gildi. Athugaðu að stafræn skilríki og pappírsskírteini eru EKKI leyfð. Dæmi um slík skilríki eru gömlu bleiku eða grænu ökuskírteinin og hvítu nafnskírteinin.
Eftirtalin persónuskilríki eru leyfð:
Vegabréf
Ökuskírteini
Nafnskírteini
Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan til að sjá hversu einfalt það er að virkja Auðkennisappið
