Leyfð persónu­skil­ríki

Þegar þú sækir um rafræn skilríki á skráningarstöð þarftu að framvísa persónuskilríkjum sem eru í gildi.

Eftirtalin persónuskilríki eru samþykkt til vottunar einstaklinga:

  • Vegabréf frá öllum löndum.

  • Ökuskírteini frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi (ekki stafræn og ekki plöstuð pappírsskírteini*).

  • Nafnskírteini sem einnig eru ferðaskilríki**, gefin út innan Schengen og EES.

  • Íslensk nafnskírteini, gefin út frá 1. mars 2024 af Þjóðskrá Íslands*.

  • Íslensk dvalarleyfiskort.

Dæmi um tegundir leyfðra persónuskilríkja

Framangreind persónuskilríki þurfa ávallt að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Nafn þarf að vera það sama og hjá Þjóðskrá, ef kennitölu skilríkjahafa er ekki að finna á framvísuðum skilríkjum.

  • Fæðingardagur þarf að vera sá sami og hjá Þjóðskrá.

  • Mynd af skilríkjahafa þarf að vera skýr og greinileg.

  • Skilríkin þurfa að vera í gildi þann dag sem sótt er um rafræn skilríki.

Til eru nokkrar mismunandi tegundir af íslenskum vegabréfum. Við tökum á móti þeim öllum nema neyðarvegabréfum.

  • Almenn vegabréf

  • Diplómatísk vegabréf

  • Þjónustuvegabréf

  • Vegabréf fyrir útlendinga

  • Ferðaskilríki fyrir flóttamenn

Athugið! Eftirfarandi persónuskilríki eru ekki samþykkt:

  • Stafræn skilríki

  • Plöstuð pappírsskírteini. Dæmi um það eru gömlu bleiku eða grænu ökuskírteinin og hvítu nafnskírteinin.

  • Neyðarvegabréf

  • Framlengd vegabréf

*Gömlu bleiku pappírsökuskírteinin eru ekki tekin gild, þar sem þau uppfylla ekki þær öryggiskröfur sem Auðkenni gerir á grundvelli laga nr. 55/2019 um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti. Það sama á við um nafnskírteini gefin út fyrir 1. mars 2024. Sjá nánari upplýsingar í reglugerð 55/2023.

**Gefin út af erlendu stjórnvaldi samsvarandi Þjóðskrá Íslands. Ef ekki er hægt að staðfesta að nafnskírteinið sé jafnframt ferðaskilríki þá er Auðkenni heimilt að hafna útgáfu rafrænu skilríkjanna. Sjá nánari upplýsingar í reglugerð 866/2017.

Fannstu ekki það sem þú varst að leita að?

Við erum alltaf tilbúin að aðstoða. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur línu og við bregðumst við um hæl.

Afgreiðslutími

Virka daga 10-16
Símsvörun og netspjall virka daga 9-18 og laugardaga 10-16

KT. 521000-2790 — VSK nr. 69345