Rafræn skilríki gætu hætt að virka með Beta-útgáfu af iOS 18.4
31.3.2025
Vandamál tengt Beta-útgáfu (tilraunaútgáfu) af nýjasta iOS 18.4 stýrikerfinu í iPhone hefur valdið því að rafræn skilríki á SIM-korti hætta að virka.
Ef þú uppfærðir í þessa Beta-útgáfu og ert að lenda í þessu vandamáli, þá eru tveir möguleikar til að virkja rafræn skilríki aftur:
1. Sæktu Auðkennisappið.
Hægt er að setja upp rafræn skilríki í Auðkennisappinu með sjálfskráningu (https://www.audkenni.is/upplysingar/rafraen-skilriki/sjalfskraning) ef þú átt íslenskt vegabréf og hefur náð 13 ára aldri.
Einnig er hægt að mæta á næstu skráningarstöð með leyfð persónuskilríki og fá þar útgefin rafræn skilríki í Auðkennisappið.
2. Fjarlægðu Beta-útgáfuna.
Þú getur fjarlægt Beta-útgáfuna og skipt yfir í fyrri útgáfu af iOS, eða tengt símann við tölvu og endurheimt fyrri útgáfu stýrikerfisins.
Athugaðu:
Ef þú ert ekki með afrit af gögnunum í símanum þínum gætu þau glatast við þessa aðgerð.
Starfsfólk Auðkennis getur því miður ekki veitt aðstoð í þessu ferli. Ef þú getur ekki fjarlægt Beta-útgáfuna, gætir þú þurft að hafa samband við Apple til að leysa málið.
Til þess að athuga hvaða stýrikerfi er á þínum síma:
Veldu Settings > General > About > iOSVersion