Auðkenni var stofnað árið 2000
Vegna vaxandi krafna fyrirtækja í fjármálum og upplýsingatækni um aukið öryggi í rafrænum viðskiptum. Auðkenni hefur verið í eigu hins opinbera frá árinu 2022 og á samstarf við fjölmarga aðila, meðal annars fjármálageirann, opinbera aðila og leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni og fjarskiptum. Þá á fyrirtækið einnig í viðamiklu evrópsku samstarfi.

Íslenskar og alþjóðlegar lausnir
Þjónusta Auðkennis er byggð á íslenskum lausnum, þróuðum af fyrirtækinu sjálfu, og alþjóðlegum lausnum sem sniðnar eru að íslenskum aðstæðum. Rafræn skilríki Auðkennis spila lykilhlutverk í að auðvelda samskipti einstaklinga, fyrirtækja og stofnanna. Þjónusta og lausnir Auðkennis eru mikilvægar grunnstoðir í stafrænum innviðum íslensks samfélags og hlutverk Auðkennis er að stuðla að og auðvelda örugg samskipti.

Stiklað á stóru í sögu Auðkennis
Árið 2000
Árið 2005
Árið 2006
Árið 2007
Árið 2008
Árið 2013
Vinnustaðurinn
Auðkenni er eftirsóttur og framsækin vinnustaður sem hæft fólk sækist eftir að starfa hjá. Fyrirtækið starfar eftir viðurkenndum stöðlum, býr yfir mikilvægum vottunum og er sjálfbært félag rekið í samræmi við hófleg arðsemismarkmið. Hjá Auðkenni starfa 34 einstaklingar í dag á fjórum sviðum: skrifstofu framkvæmdastjóra, tæknisviði, rekstarsviði og þjónustusviði.

Skilvirk, örugg og framsækin
Þetta eru grunngildin okkar sem kjarna alla starfsemina
Vottanir
Auðkenni er traustþjónustuveitandi sem starfar á grundvelli laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti nr. 55/2019, félagið er þar með undir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 910/2014 (eIDAS) og undirgengst reglulegar vottanir gagnvart því regluverki. Auðkenni viðheldur vottuðu stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt ISO/IEC 27001:2013 staðlinum.

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni
Auðkenni tekur sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð alvarlega, markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í öruggri auðkenningu og traustþjónustu og styðja lausnir félagsins við sjálfbæra þróun. Félagið er aðili að Festu – miðstöð um sjálfbærni og Grænum skrefum. Auðkenni hefur einnig hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki.
