Ef ég kemst ekki á skráningastöð hvað geri ég þá?

Þjónustuaðilar og þeir sem setja traust sitt á rafrænu skilríkin gera þá kröfu að þeir sem vilja fá rafræn skilríki verða að mæta í eigin persónu á skráningarstöð til þess að fá rafræn skilríki á SIM-kort og framvísa lögbundnum skilríkjum eins og ökuskírteini eða vegabréfi til að votta viðkomandi.

Þetta er gert til að koma í veg fyrir falsanir og tryggja á eins öruggan hátt og mögulegt er að réttir aðilar fái rafrænu skilríkin.

Því miður eru engar undantekningar gerðar á þessum kröfum sem þýðir að einstaklingar sem ekki komast í eigin persónu á skráningarstöð eiga ekki möguleika á að fá rafræn skilríki á SIM-kort. Skráningastöðvar eru í öllum bankaútibúum og flestum símaverslunum.

Þeim aðilium sem eru í þessari stöðu bendum við á að hafa sambandi við þá þjónustuveitendur sem þeir eru í viðskiptum við til að leita annarra leiða eins og t.d. SMS varaleið netbankanna.

Fyrir einstaklinga sem eiga gilt íslenskt vegabréf, hafa náð 18 ára aldri og eiga snjalltæki sem styður NFC þá er hægt að sækja Auðkennisappið og nota sjálfsskráningu til að fá rafræn skilríki í því. Smelltu hér til að fá allar upplýsingar.

Auðkenni er ekki heimilt að framleiða rafræn skilríki nema tilvonandi skilríkjahafi geti notað þau einn og óstuddur. Þessi regla er ófrávíkjanleg en samkvæmt 7. gr. a laga nr. 85/2018, er hægt að sækja um beiðni um aðlögun.

Ítarlegra svar

Þá áttu ekki möguleika á að fá rafræn skilríki á SIM-kort og verður að hafa samband við þá þjónustuaðila sem þú ert í viðskiptum við til að leita annarra leiða. Þú gætir hins vegar fengið rafræn skilríki í Auðkennisappið, smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.

Ítarlegra svar

Nei, allir sem ætla að fá virkjuð rafræn skilríki þurfa að mæta í eigin persónu á skráningarstöð á Íslandi. 

Ein af aðal öryggiskröfunum í virkjanaferli fullgildra rafrænna skilríkja er að viðkomandi mæti í eigin persónu á skráningarstöð og framvísi þar gildu vegabréfi, ökuskírteini með skýrri mynd eða nafnskírteini til vottunar. Þar sem engar skráningarstöðvar fyrir þessi skilríki eru staðsettar erlendis er eina leiðin til að fá rafræn skilríki virkjuð að koma á skráningarstöð á Íslandi.

Fullgild rafræn skilríki munu verða grundvöllur öruggari rafrænna samskipta við hið opinbera, fjármálastofnanir og fyrirtæki. Viljir þú eiga rafræn samskipti við þessa aðila í framtíðinni þá þarftu að hafa slík skilríki til að auðkenna þig á öruggan hátt og einnig til að geta framkvæmt rafrænar undirritanir. Rafrænar undirritanir með fullgildum rafrænum skilríkjum eru að lögum jafngildar undirritun með penna.

Rafræn skilríki byggja á öruggustu tækni sem völ er á í dag og geyma þínar upplýsingar í mjög öruggum dulritunarbúnaði á örgjörvanum sem er á SIM- eða örgjörvakortinu þínu. Dulritunarbúnaðurinn er vottaður fyrir örugga varðveislu, upplýsingarnar fara aldrei af örgjörvanum og aðgangsorðið (PIN númerið) er ekki geymt hjá þjónustuaðilum.

Vandaðu þig þegar þú velur PIN númer.

Ítarlegra svar

Nei, stafrænt ökuskírteini dugar ekki sem vottunargagn þegar óskað er eftir rafrænum skilríkjum. Öryggi stafrænu ökuskírteinanna er mjög gott ef strikamerkið er skannað og því flett upp í gagnagrunnum lögreglunnar. Þann aðgang hefur aðeins lögreglan. Án þessa aðgangs uppfylla skilríkin ekki öryggiskröfur.