Arion banki

Best er að sækja PUK númer fyrir rafræn skilríki á Auðkenniskortum á mínum síðum Auðkennis.
https://mitt.audkenni.is

Til að skrá sig inn á mínar síður þarf rafræn skilríki á farsíma, Auðkennisappi eða korti.
Eftir innskráningu birtist hnappurinn "Kort með PUK" ef viðkomandi á til kort í kerfinu sem á eftir að virkja eða kort sem ekki eru útrunnin.

Einnig er hægt að sækja PUK númer í netbanka.

Þú skráir þig inn í þinn persónulega netbanka og velur "Stillingar" í valmyndinni vinstra megin á síðunni.

Arion banki - Sækja PUK mynd 1

Eftir að stillingasíðan opnast velur þú "Sækja PUK númer".

Arion banki - Sækja PUK mynd 2

Næst smellir þú á "STARFSSKILRÍKI".
(Athugaðu að þetta á líka við þó verið sé að sækja PUK númer fyrir einkaskilríki.)

ArionNetbanki3.PNG

  1. Sláðu inn gildistíma kortsins (Dæmi: 07.04.2017).
  2. Sláðu inn númer kortsins (10 tölustafir, byrjar á 5 og nokkrum núllum).
  3. Smelltu á "Sækja PUK-Númer" hnappinn.

ArionNetbanki4.PNG

Þá eiga að birtast 8 tölustafir sem er PUK númerið fyrir viðkomandi kort.