Alvarlegar athugasemdir við fullyrðingar um falskt öryggi
Auðkenni gerir alvarlegar athugasemdir við fullyrðingar um „falskt“ öryggi auðkennislykla
Stjórn fyrirtækisins Auðkennis gerir alvarlegar athugasemdir við þær fullyrðingar sem fram komu í frétt mbl.is í gær (þri. 6. nóv.) undir yfirskriftinni „Auðkennislykill veitir falskt öryggi“. Auðkenni vill árétta eftirfarandi atriði:
- Auðkennislyklar og rafræn skilríki eru almennt taldar öruggustu auðkenningarleiðirnar við innskráningu í netbanka sem þekkjast í dag.
- Fullyrðing um að í þeim felist falskt öryggi er einungis til þess fallin að skapa óþarfa ótta og áhyggjur hjá notendum.
- Flestir norrænir bankar nýta rafræn skilríki og auðkennislykla í netbönkum sínum.
- Þær aðgerðir sem framkvæmdar eru eftir auðkenningu geta verið mis afdrifaríkar og því beita aðilar fleiri vörnum eftir auðkenningu. Með flóknari aðferðum brotamanna er nauðsynlegt að auka öryggi í rafrænum samskiptum og því eru útfærslur öryggislausna í sífelldri endurskoðun.
Bankar og sparisjóðir hafa undanfarinn áratug átt farsælt samstarf um öryggi netbanka. Með verkefni um rafræn skilríki var samstarf aðila aukið enn frekar með aðkomu hins opinbera. Samstarf aðila er nauðsynlegt til þess að stuðla að enn öruggara umhverfi á Íslandi.
Innleiðing rafrænna skilríkja hefur staðið yfir hér á landi undanfarin ár og hefur rafrænum skilríkjum nú verið dreift til 170.000 einstaklinga en þau þarf að virkja sérstaklega í viðskiptabanka.
Kostir rafrænna skilríkja felast ekki aðeins í bættu öryggi heldur auka þau þægindi fólks í samskiptum með einu auðkenni í stað fjölda notendanafna og lykilorða. Skilríkin gera fólki kleift að eiga samskipti við rúmlega 100 aðila svo sem banka, sparisjóði, ríkisstofnanir, sveitarfélög, lífeyrissjóði, stéttarfélög, símafyrirtæki, tryggingafélög og fleiri, með sama lykilorðinu.