Tal / 365
Sem viðskiptavinur Tals sækirðu um nýtt SIM kort á www.tal.is, sem sendir þér kortið heim.
Þegar þú ert komin(n) með SIM kortið í símann geturðu farið á næstu skráningarstöð Auðkennis sem finna má um land allt. Veldu það landsvæði sem þú vilt sækja þjónustuna til og síðan það þjónustufyrirtæki sem við á.
Við virkjun skilríkjanna þarft þú að skrifa undir samning (skoða samning hér á pdf) og velja þér PIN númer fyrir skilríkin þín en það má vera fjórir til átta tölustafir.
Athugið að hafa með ykkur ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini þegar virkja á rafræn skilríki á kortum og auðvitað símann þegar sótt er um rafræn skilríki í síma.