Síminn
Þú færð rétta tegund af SIM korti í næstu verslun Símans eða hjá endursöluaðilum víðsvegar um landið.
Þegar þú ert komin(n) með SIM kortið í símann geturðu farið á næstu
skráningarstöð Auðkennis sem finna má um land allt. Veldu það landsvæði
sem þú vilt sækja þjónustuna til og síðan það þjónustufyrirtæki sem við
á.
Við virkjun skilríkjanna þarft þú að skrifa undir samning (skoða samning hér á pdf) og velja þér PIN númer fyrir skilríkin þín en það má vera fjórir til átta tölustafir.
Athugið að hafa með ykkur ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini þegar virkja á rafræn skilríki á kortum og auðvitað símann þegar sótt er um rafræn skilríki í síma.