Aðrir
Viðskiptavinir símafélaga sem enn undirbúa innleiðingu rafrænna skilríkja í farsíma geta sótt um einkaskilríki hér á vef Auðkennis.
Einkaskilríkin geturðu síðan notað til þess að sækja um rafræn skilríki á símann, þegar símafélagið sem þú ert í viðskiptum við, býður lausnina á sínum SIM kortum.
Einkaskilríkin geturðu fengið afhent um land allt.
Hvernig sæki ég um Einkaskilríki?
Afgreiðslustaðir einkaskilríkja
Hér fyrir neðan geturðu séð hvar þú getur sótt einkaskilríkin. Veldu það landsvæði sem þú vilt sækja þjónustuna til og síðan það þjónustufyrirtæki sem við á.
Athugið að hafa með ykkur PUK númer og ökuskírteini eða vegabréf þegar rafræn skilríki eru sótt.