Ef ég kemst ekki á skráningastöð hvað geri ég þá?
Þjónustuaðilar og þeir sem setja traust sitt á rafrænu skilríkin gera þá kröfu að þeir sem vilja fá rafræn skilríki verða að mæta í eigin persónu á skráningarstöð og framvísa lögbundnum skilríkjum eins og ökuskírteini eða vegabréfi til að votta viðkomandi.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir falsanir og tryggja á eins öruggan hátt og mögulegt er að réttir aðilar fái rafrænu skilríkin.
Því miður eru engar undantekningar gerðar á þessum kröfum sem þýðir að einstaklingar sem ekki komast í eigin persónu á skráningarstöð eiga ekki möguleika á að fá rafræn skilríki. Skráningastöðvar eru í öllum bankaútibúum og flestum símaverslunum.
Þeim aðilium sem eru í þessari stöðu bendum við á að hafa sambandi við þá þjónustuveitendur sem þeir eru í viðskiptum við til að leita annarra leiða eins og t.d. SMS varaleið netbankanna.
Auðkenni má ekki framleiða rafræn skilríki nema að tilvonandi skilríkjahafi geti notað þau án hjálpar frá annarri manneskju. Þetta er ófrávíkjanleg regla. Aðilar sem ekki geta notað rafræn skilríki vegna t.d. fötlunar geta ekki fengið útgefin rafræn skilríki. Aðstandendur verða að fá umboð frá viðkomandi til að sýsla með þeirra mál, annaðhvort á pappír eða að viðkomandi aðstandandi noti sín eigin rafrænu skilríki til að komast inn á reikninga viðkomandi.
Þá áttu ekki möguleika á að fá rafræn skilríki og verður að hafa samband við þá þjónustuaðila sem þú ert í viðskiptum við til að leita annarra leiða.
Nei, allir sem ætla að fá virkjuð rafræn skilríki þurfa að mæta í eigin persónu á skráningarstöð á Íslandi.
Ein af aðal öryggiskröfunum í virkjanaferli fullgildra rafrænna skilríkja er að viðkomandi mæti í eigin persónu á skráningarstöð og framvísi þar gildu vegabréfi, ökuskírteini með skýrri mynd eða nafnskírteini til vottunar. Þar sem engar skráningarstöðvar fyrir þessi skilríki eru staðsettar erlendis er eina leiðin til að fá rafræn skilríki virkjuð að koma á skráningarstöð á Íslandi.
Fullgild rafræn skilríki munu verða grundvöllur öruggari rafrænna samskipta við hið opinbera, fjármálastofnanir og fyrirtæki. Viljir þú eiga rafræn samskipti við þessa aðila í framtíðinni þá þarftu að hafa slík skilríki til að auðkenna þig á öruggan hátt og einnig til að geta framkvæmt rafrænar undirritanir. Rafrænar undirritanir með fullgildum rafrænum skilríkjum eru að lögum jafngildar undirritun með penna.
Rafræn skilríki byggja á öruggustu tækni sem völ er á í dag og geyma þínar upplýsingar í mjög öruggum dulritunarbúnaði á örgjörvanum sem er á SIM- eða örgjörvakortinu þínu. Dulritunarbúnaðurinn er vottaður fyrir örugga varðveislu, upplýsingarnar fara aldrei af örgjörvanum og aðgangsorðið (PIN númerið) er ekki geymt hjá þjónustuaðilum.
Vandaðu þig þegar þú velur PIN númer.
Nei, stafrænt ökuskírteini dugar ekki sem vottunargagn þegar óskað er eftir rafrænum skilríkjum. Öryggi stafrænu ökuskírteinanna er mjög gott ef strikamerkið er skannað og því flett upp í gagnagrunnum lögreglunnar. Þann aðgang hefur aðeins lögreglan. Án þessa aðgangs uppfylla skilríkin ekki öryggiskröfur.