Markmið
Markmið Auðkennis er að stuðla að öryggi og skapa traust í rafrænum viðskiptum með því að:
- Veita alhliða þjónustu og ráðgjöf á sviði rafrænna undirskrifta og öryggismála.
- Starfrækja íslenska vottunarstöð sem gefur út rafræn skilríki er njóta alþjóðlegrar viðurkenningar.
- Veita þjónustu sem opin er öllum með áherslu á trúnað og traust.
Með starfsemi sinni stuðlar Auðkenni að öruggum rafrænum samskiptum og viðskiptumi milli einstaklinga, fyrirtækja og stjórnvalda og stuðlar þar með stuðla að traustum viðskiptum á ótryggum boðleiðum. Auðkenni leggur áherslu á þróun rafrænna viðskipta á Íslandi og mikilvægi þess að tryggja þátttöku Íslands í örri þróun þeirra á alþjóðavettvangi.