Fréttir

27.04.2012
Fyrsti ársreikningurinn á Íslandi á rafrænu formi

Fyrsti ársreikningurinn á Íslandi sem eingöngu verður til á rafrænu formi

  • Rafrænt undirritaður ársreikningur sendur til ársreikningaskrár
  • Hluthafar munu skoða reikninginn með spjaldtölvum á aðalfundi

Aðalfundur Auðkennis, sem verður haldinn á morgun, föstudaginn 27. apríl, kl. 15.00 á Hilton Reykjavík Nordica, verður óvenjulegur að því leyti að þar verður enginn pappír notaður. Ársreikningur fyrirtækisins verður jafnframt sá fyrsti hér á landi, sem eingöngu verður til á rafrænu formi. Engin eintök verða prentuð á pappír af hálfu Auðkennis og öll umsýsla, undirritun, samþykktir og skil ársreikningsins eru rafræn. Hluthafar á aðalfundi munu skoða reikninginn með spjaldtölvum ásamt því að taka við varanlegu eintaki ársreikningsins á minniskubbi sem einnig er kortalesari fyrir fullgild rafræn skilríki. Fyrr í vikunni undirritaði Haraldur A. Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis ásamt stjórn og endurskoðanda fyrirtækisins, ársreikninginn með rafrænum skilríkjum.

Flest rafrænt hjá Auðkenni
Hjá Auðkenni starfa 10 manns sem allir hafa undirritað ráðningarsamninga sína við félagið með rafrænum skilríkjum. "Eðli málsins samkvæmt leggjum við ofuráherslu á að allir samningar, tilkynningar eða undirskriftir séu gerðar með rafrænum skilríkjum" segir Haraldur og bætir við að samningar við birgja og undirverktaka séu undirritaðir með rafrænum skilríkjum. Stjórnin samþykkir fundargerðir og staðfestir með rafrænni undirritun og tilkynningar til opinberra aðila eru rafrænt undirritaðar og sendar rafrænt, auk beiðna um gjaldeyriskaup og fleira.

Fyrirtækið Auðkenni sem er í eigu Landsbankans, Íslandsbanka, Arion banka, Símans og Teris var stofnað í september árið 2000 vegna vaxandi krafna fjármála- og fjarskiptafyrirtækja um aukið öryggi í rafrænum viðskiptum. Auðkenni er eina fyrirtækið á Íslandi sem býður fullgild rafræn skilríki. Bankar og sparisjóðir hafa nú þegar framleitt yfir 230 þúsund debetkort með rafrænum skilríkjum fyrir 170 þúsund einstaklinga sem er ein mesta dreifing rafrænna skilríkja í Evrópu. Öllum almenningi stendur til boða að fá rafræn skilríki á debetkorti án endurgjalds. Skilríkin má nota til auðkenningar á netinu hjá yfir 70 þjónustuaðilum, innanlands og erlendis; hjá ríki, sveitarfélögum, lífeyrissjóðum, almennum fyrirtækjum og fleirum. Skilríkin má einnig nota til fullgildra rafrænna undirskrifta án hindrana.

05.12.2011
Greiningatól Auðkennis

Greiningatól Auðkennis, GretAAuðkenni hefur hannað sérstakt greiningatól, GretA, sem notendur rafrænna skilríkja geta notað til að greina ástand tölvunar í sambandi við rafrænu skilríkin.

Notendur geta farið inn á vefsíðuna www.audkenni.is/adstod og valið að keyra GretA.
Þá segir tólið til um hvort kortalesari sé tengdur rétt, hvort allur hugbúnaður sé til staðar og hvort hann sé að keyra rétt, kannar hvort Íslandsrót sé til staðar og setur hana inn ef notandi kýs svo, ásamt ýmsu öðru sem við kemur virkni rafrænu skilríkjanna.

Við hjá Auðkenni vonum að þessi nýjung komi til með að auðvelda þeim notendum sem hafa lent í vandærðum að leysa úr þeim á auðveldan hátt.

02.12.2011
Ný útgáfa af Nexus Personal

Nexus PersonalKomin er ný útgáfa af Nexus Personal í dreifingu hjá Auðkenni. Nýja útgáfan 4.18.1 á að vera stöðugri en eldri útgáfan og búið er að gera nokkrar endurbætur.

Nýja útgáfan er bæði 32 og 64 bita og finnur sjálf hvort á við í uppsetningarferlinu. Einnig skynjar hún tungumálastillingu á viðkomandi tölvu og setur það sem sjálfgefið í uppsetningarferlinu og í notkuninni eftir uppsetningu. Notendur geta einnig skipt um tungumál eins og áður.

Vandamálið með að Windows 7 finni ekki rekla fyrir Smart Card er líka úr sögunni í þessari útgáfu.

Hægt er að nálgast nýju útgáfuna hér:
http://www.audkenni.is/personal/

Væntanlegar eru svo nýjar útgáfur af Nexus Personal fyrir Mac og Linux og munum við tilkynna það hér um leið og þær verða tilbúnar til dreifingar.

11.07.2011
Auðkenni flutt í nýtt húsnæði

Auðkenni hefur flutt skrifstofu sína úr Engjateig 3 í Borgartún 31 105 Reykjavík.

Við erum í sama húsi og Tölvutek, beint á móti Einari Farestveit og Vínbúðinni, á þriðju hæð til vinstri ef gengið er upp stigan en til hægri ef lyftan er tekin.

Borgartún 31
Borgartún 31

Hjá Auðkenni vinna nú 7 manns í fullu starfi og ein manneskja í hlutastarfi.

Sjá fleiri fréttir

AUÐKENNI - Borgartúni 31 - 105 Reykjavík - Þjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjá)audkenni.is