Vottunarstöðvar Auðkennis

Vottunarþjónustu Auðkennis er skipt upp í margar vottunarstöðvar, þar sem hver vottunarstöð hefur það hlutverk að framkvæma vottun og framleiðslu rafrænna skilríkja í samræmi við þá vottunarstefnu sem gildir um framleiðsluna.

Vottunarstöð Fullgilds auðkennis Vottunarstöð Fullgilds auðkennis ber ábyrgð á framleiðslu og afhendingu fullgildra rafrænna skilríkja sem gefin eru út undir Íslandsrót. Fullgild skilríki eru fáanleg í dag á örgjörvakortum, annað hvort debetkortum eða kortum sem sérstaklega eru notuð í varðveislu skilríkjanna. Framleiðslu og afhendingu fullgildra rafrænna skilríkja fylgja strangar kröfur og skilyrði. Upplýsingar um þessar kröfur og hvernig vottunarstöðin uppfyllir þær má finna á sérstakri vefsíðu vottunarstöðvarinnar. Sjá nánar

Vottunarstöð Auðkennisrótar Vottunarstöð Auðkennisrótar ber ábyrgð allri útgáfu rafrænna skilríkja í traustkeðju Auðkennisrótarinnar. Vottunarstöðin sjálf gefur eingöngu út milliskilríki sem gefa út önnur skilríki. Í traustkeðju Auðkennisrótarinnar eru í dag vottunarstöðvar Trausts auðkennis sem ætluð er útgáfu rafrænna skilríkja af háu öryggisstigi og Trausts búnaðar sem gefið er út af Traustu auðkenni í þeim tilgangi að framleiða og selja búnaðarskilríki af háu öryggisstigi. Sjá nánar

AUÐKENNI - Borgartúni 31 - 105 Reykjavík - Þjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjá)audkenni.is