Þjónustuveitendur

Atvinnulífið getur notfært sér rafræn skilríki til að sinna erindum sínum við hið opinbera með skilvirkum hætti. Með því að taka upp umhverfi sem gerir ráð fyrir rafrænum skilríkjum í viðskiptum geta þjónustuveitendur bætt og aukið þjónustu sína við viðskiptavini sína verulega.

Með öruggu auðkenni þeirra sem nota skilríkin má opna fyrir persónulegar upplýsingar svo sem reikninga viðkomandi hjá fyrirtækinu, netverslun verður auðveldari og milliliðalaus og samningar milli viðskiptavina og fyrirtækja má undirrita rafrænt.

Íslenska ríkið notar rafræn skilríki nú þegar svo sem við afgreiðslu tollskýrslna og rafræn skil endurskoðenda á skattskýrslum. Bankar og sparisjóðir hafa einnig innleitt þessi skilríki í þjónustur sínar.

Með endurútgáfu debetkorta banka og aðkomu fleiri fyrirtækja mun útbreiðsla rafrænna skilríkja verða almenn. Það felur í sér byltingu í samskiptum á netinu.

Með þeim skapast traust þar sem notendur geta með öruggum hætti auðkennt sig og skrifað rafrænt undir skjöl og skuldbindingar. Samhliða almennri útbreiðslu mun framboð á ýmis konar rafrænni þjónustu margfaldast sem mun skila sér í auknu hagræði fyrir þjónustuveitendur, fyrirtæki og almenning.

Leiðbeiningar fyrir þjónustuveitendur

AUÐKENNI - Borgartúni 31 - 105 Reykjavík - Þjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjá)audkenni.is