Spurt og svarað
Byrjaðu á því að slökkva og kveikja á Nexus Personal forritinu.
Hægri smelltu á Nexus Personal táknmyndina (rauður hringur með hvítum karli) í horninu niðri til hægri og veldu Hætta. Þá slökknar á forritinu og táknmyndin hverfur.
Til að ræsa forritið aftur ferð þú í Start (neðst til vinstri) og svo í All Programs og finnur þar Personal möppuna og smellir á hana og smellir svo á Personal táknið. Þá keyrir forritið sig upp og táknmyndin á að birtast niðri í hægra horninu.
Í flestum tilfellum dugar þetta til að leysa málið.
Ef upp kemur "Driver softwere not found" þá er það Windows 7 sem er að reyna að setja upp drivera fyrir örgjafan á kortinu sem er ekki hægt. Þetta er í raun röng skilaboð hjá Windows, haltu bara áfram, þetta hefur engin áhrif á notkun skilríkjanna.
Það tekur um sex tíma frá því þú sóttir kortið þar til örgjörvin er virkur.örgjörvan á kortinu. Eftir þann tíma getur þú notað kortið við innskráningar á vefsvæði.
Ef það kemur ljós á lesarann og Nexus personal táknmyndinn snýst þegar kortinu er stungið í lesarann þá er kortalesarinn virkur.
Ef þú ert með kortalesara úr Sparisjóði eða annari bankastofnun þá fylgir rekillinn með Nexus personal forritinu og þú þarft ekki að sækja rekla sérstaklega. Ef þú ert með annan kortalesara þá færðu rekla fyrir kortalesarann hjá framleiðanda kortalesarans.
Þegar þú sóttir rafræna skilríkið þitt þá varst þú beðin um að búa til sex tölustafa pin númer. Númerið er tvíþætt annarsvegar auðkennigarpin notað við innskráningu og eru fyrstu fjórar tölurnar í númerinu og hinsvegar undirritunarpin sem er fullt sex stafa pin númer og notað við rafræna undirskirft.
Þá þarf að fara í bankaútibú með gild persónuskilríki t.d. vegabréf eða ökuskirteini og puk númerið sem á að vera í heimabankanum þínum og búa til nýtt pin númer á kortið.
Ef þú er erlendis þá sendir þú okkur póst á hjalp@audkenni.is og við sendum þér hugbúnaðinn.