Samanburður á rafrænum skilríkjum
Í dag býður Auðkenni upp á 8 tegundir skilríkja.
Til að byrja með skulum við skipta þeim í tvo flokka:
- Skilríki á örgjörvakortum
- Hugbúnaðarskilríki (mjúk skilríki)
Skilríki á örgjörvakortum
Við bjóðum upp á tvær gerðir af kortum hvert kort er með 2 skilríkjum:
- Einstaklingsskilríki
- Starfsskilríki
Á hverju korti eru 2 skilríki, annað fyrir auðkenningar inn á vefsvæði og hitt fyrir rafrænar undirritanir.
Eini munurinn á milli einka- og starfsskilríkja er að kennitala fyrirtækis er í starfsskilríkjunum. Það er svo á valdi þeirra þjónustuveitenda sem treysta skilríkjunum hvort þeir setji skilyrði um að kennitala fyrirtækis sé tengd skilríkjahafanum til að veita vissar þjónustur eða ekki. Nánar um muninn á milli einka- og starfsskilríkja?
Hugbúnaðarskilríki
Við bjóðum upp 2 gerðir af hugbúnaðarskilríkjum:
Vefskilríki (SSL) eru til að dulrita samskipti vefsíðna við notendur.
Búnaðarskilríki eru fyrir kerfi sem hafa samskipti við sambankakerfi banka og sparisjóða.
Þetta eru hugbúnaðarskilríki (ekki á örgörvakortum) sem innihalda einungis upplýsingar um fyrirtæki en ekki einstaklinga. Hægt er að setja sama skilríkið upp á mörgum vélum.
Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir að einhverju leiti munin á milli skilríkjanna en er þó ekki tæmandi.
Nánari upplýsingar gefur Auðkenni í síma 580 6400.
(Verð eru miðuð við gjaldskrá frá 1. janúar 2012)