Kortalesarar

Til að geta notað rafræn skilríki á örgjörvakortum þarf kortalesara sem les kortið og tengir það við tölvuna.

Hvar fást svona kortalesarar?

Flest útibú bankanna útvega lesara gegn vægu gjaldi. Í mörgum nýrri fartölvum eru þessir lesarar innbyggðir og einnig eru til sölu í mörgum verslunum lyklaborð með innbyggðum kortalesurum sem er mjög þægilegt lausn.

Er flókið að tengja lesara við tölvuna?

Nei, þeir eru allir tengdir með USB snúru við tölvuna. Í langflestum tilfellum finnur stýrikerfið viðeigandi rekla fyrir kortalesarana án þess að notandinn þurfi að gera neitt. Í einhverjum tilfellum getur þurft að setja rekla handvirkt inn og hér fyrir neðan eru reklar fyrir allar tegundirnar af kortalesurum sem bankarnir hafa verið að afhenda.

Reklar fyrir kortalesara

OK - Omnikey Rekill fyrir Windows 32 bita stýrikerfi (ZIP skrá 3,8 MB)

Rekill fyrir Windows 64 bita stýrikerfi (ZIP skrá 4,0 MB)

TODOS - Argos mini Rekill fyrir Windows stýrikerfi (EXE skrá 3,2 MB)

Mac notendur athugið:
Þessi lesari virkar ekki í mörgum tilfellum nema Reklar séu sóttir sérstaklega.
Reklar fyrir Mac og Linux (Vefsíða)

XIRING - teo Rekill fyrir Windows stýrikerfi (Zip skrá 0,5 MB)

GEMALTO - PC USB-TR Rekill fyrir Windows 32 bita stýrikerfi (MSI skrá 1,2 MB)
Rekill fyrir Windows 64 bita stýrikerfi (MSI skrá 1,6 MB)

AUÐKENNI - Borgartúni 31 - 105 Reykjavík - Þjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjá)audkenni.is