NEXUS PERSONAL
Fyrir Windows:
NexusPersonalWin.exe
Leiðbeiningar:
Leiðbeiningar fyrir Windows

Fyrir Mac:
NexusPersonalMac.zip
Leiðbeiningar:
Leiðbeiningar fyrir Mac
Fyrir Linux:
NexusPersonalLin.tar.gz
Leiðbeiningar:
Leiðbeiningar fyrir Linux

Hugbúnaður

Þarf einhvern auka hugbúnað?

Auðkenningar:

Varðandi auðkenningar inn á vefsvæði þurfa rafræn skilríki engan sérstakan hugbúnað annan en þann sem er innbyggður í stýrikerfi og vafra tölvunnar.

Skilríki á kortum er undantekning þar sem sérstakan hugbúnað auk kortalesara þarf til að tölvan nái sambandi við skilríkin á kortinu.

Hugbúnaðurinn heitir Nexus Personal og er ókeypis og aðgengilegur öllum á Íslandi. Sjá nánar um Nexus Personal

Undirritanir:

Ef beita á undirritunarskilríkjum til að skrifa rafrænt undir skjöl þarf einhverskonar ritvinnslubúnaður að vera til staðar eins og t.d. Word eða Acrobat Writer. Ef skjalið er undirbúið í Acrobat Writer með sérstöku undirritunarsvæði þá dugir Acrobat Reader til að undirrita.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar gefur þjónustuver Auðkennis í síma 530 0000 eða í netfangið hjalp@audkenni.is

Einnig er hægt að senda skilaboð í gegnum þennan vef með því að smella á Hafðu samband í haus síðunnar.

AUÐKENNI - Borgartúni 31 - 105 Reykjavík - Þjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjá)audkenni.is