Skilríki á smartkortum
Þessi misserin er verið að dreifa rafrænum skilríkjum á ný örgjörvavædd debetkort landsmanna. Áætlanir gera ráð fyrir að um áramótin 2011 - 2012 verði þorri allra landsmanna kominn með þessi nýju skilríki í hendurnar.Auðkenni býður þessi skilríki ásamt svokölluðum starfsskilríkjum á kortum, oft kallað snjallkort, sem eru ekki með neina greiðsluvirkni heldur einungis rafrænu skilríkin.
Í dag eru fjölmargir þjónustuveitendur farnir að nýta sér þessi rafrænu skilríki í aðgangsstýringar og fleira og fer listinn stækkandi.
Sjá lista yfir þjónustuveitendur
Vandamál við notkun skirlríkjanna?
Ef þú ert búinn að setja upp Nexus Personal og færð skilríkin ekki til að virka þá gætu þessar leiðbeiningar ef til vill hjálpað þér.NexusPersonalAdstod.pdf
Mac notendur og Firefox vandamál
Ef þú ert að nota rafrænu skilríkin á Mac með Firefox og færð meldinguna "Secure Connection Failed" þá gæti eftirfarandi leyst vandamálið:- Fara í applications í Finder.
- Velja Firefox -> smella File -> Get info (einnig hægt að hægri smella á Firefox og velja get info)
- Haka í Open in 32-bit mode.
- Loka Get info glugga.