Búnaðarskilríki
Búnaðarskilríkin eru fyrstu skilríkin sem Auðkenni býður viðskiptavinum sínum sem gefin eru út undir Auðkennisrótinni.
Þetta eru svokölluð hugbúnaðarskilríki oft kölluð soft skilríki (software certificate) og eru hugsuð til að undirrita gagnasendingar á milli bókhaldskerfa, banka og sparisjóða. Skilríki eru gefin út á fyrirtæki en ekki á einstaklinga og hafa gildistíma í allt að 4 ár.
Skilríkin geta verið hvort heldur sem er á netþjónum fyrir miðlægar keyrslur eða á útstöðvum notenda.
Bankar og sparisjóðir lesa svo kennitölu fyrirtækis úr skilríkinu og veita aðgang út frá henni. Þetta er mun þægilegra en áður og verður til þess að einfalda öll samskipti verulega. Þetta þýðir að ekki þarf að senda bankanum afrit af dreifilykli, serialnúmer skilríkis eða eitthvað annað í hvert skipti sem nýtt skilríki er sett upp.
Munið að skilríkið er hugsanlega lykillinn að sjóðum fyrirtækisins, umgangist skilríkið með það í huga.