Leiðbeiningar
Hér munum við gera okkar besta til að koma leiðbeiningum á framfæri.Við höfum skipt þeim í 3 flokka:
- Skilríki á smartkortum - Fyrir skilríkjahafa.
- Búnaðarskilríki - Fyrir sambankaþjónustur og fleira.
- Þjónustuveitendur - Fyrir aðila sem vilja taka á móti notendum með skilríki.
Allar nánari upplýsingar gefur þjónustuver Auðkennis í síma 530 0000 eða í netfangið hjalp(hjá)auðkenni.is
Einnig er hægt að senda skilaboð beint af þessum vef: Senda skilaboð til Auðkennis
Skilríkin mín eru ekki að virka, hvað er best að gera?
Ef skilríkin virka ekki er gott ráð að slökkva og kveikja á Nexus Personal forritinu og reyna svo aftur.Hægri smelltu á Nexus Personal táknmyndina sem lítur svona út
Til að ræsa forritið aftur ferð þú í Start (neðst til vinstri) og svo í All Programs og finnur þar Personal möppuna og smellir á hana og smellir svo á Personal táknið. Þá keyrir forritið sig upp og táknmyndin á að birtast niðri í hægra horninu.
Í mörgum tilfellum dugar þetta til að leysa málið.