Markmið Auðkennis er að stuðla að öryggi og skapa traust í rafrænum viðskipum með því að: - Veita alhliða þjónustu og ráðgjöf á sviði rafrænna undirskrifta og öryggismála.
- Starfrækja íslenska vottunarstöð sem gefur út stafræn skilríki er njóta alþjóðlegrar viðurkenningar.
- Veita þjónustu sem opin er öllum með áherslu á trúnað og traust.
Auðkenni leitast við að tryggja örugg rafræn viðskipti milli einstaklinga, fyrirtækja og stjórnvalda og þar með stuðla að traustum viðskiptum á ótryggum boðleiðum. Auðkenni leggur áherslu á þróun rafrænna viðskipta á Íslandi og mikilvægi þess að tryggja þáttöku Íslands í örri þróun þeirra á alþjóðavettvangi.
|