Hvað eru rafræn skilríki Rafræn skilrki, einnig kalla rafrænt vottorð eða skírteini, eru rafrænar hliðsætur ökuskírteina, vegabréfa og félagsskírteina. Hægt er a framvísa skilríkinu með rafrænum hætti til að sanna auðkenni þitt – hver þú ert -- eða rétt þinn til aðgangs að upplýsingum og/eða þjónustu á netinu. Hverjir nota rafræn skilrki? Allir þeir sem nota netið. Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Hvers vegna að nota rafræn skilríki? Einstaklingar geta nota skilríkin í samskiptum á netinu til að nálgast upplýsingar á lokuðum vefsvæðum, þar sem þeir áður notuðu notandanafn og lykilorð. Einnig er hægt að undirrita skjöl til dæmis, samninga eða umsóknir rafrænt. Rafræn undirritun auðkennir einstaklinginn og tryggir að ekki sé átt við skjölin. Hvað er pin númerið sem þarf til að virkja skirteinið í fyrsta sinn? Pin númerið er 12345678. Mælt er sterklega með því að breyta því sem fyrst. Aðeins er hægt að nota tölustafi
í pin númeri. Hvernig er rafrænt skilríki notað? Kortinu er stungið í kortalesara sem annað hvort getur verið innbyggður í tölvu eða sem aukabúnaður tengdur við tölvuna. Eftir að skilríkinu er tengt við tölvuna þá er hægt að nota það þar sem það er stutt. Hvaða persónuskilríki eru tekin gild við útgáfuna? Ökuskirteini, vegabréf og nafnskirteini. Hvorki Debet né Kreditkort eru gild.
Hvað
gilda stafrænu skilríkin lengi? Þar sem um prufuskilríki er að ræða, þá gilda þau í 2 mánuði eftir útgáfu. |