Rafræn skilríki eru notuð til þess auðkenningar og veita þau þannig aðgang að ýmissi þjónustu á netinu. Hjá hinu opinbera verður til dæmis hægt að fá aðgang að ýmsum upplýsingum sem eru tengdar viðkomandi persónu eða lögaðila. Hjá bönkum og sparisjóðum verður til dæmis hægt að auðkenna sig inná heimabanka. Samhliða er unnt að taka upp rafrænar undirskriftir sem koma í stað hefðbundinna undirskrifta. Hjá hinu opinbera verður gerlegt að skrifa rafrænt undir skjöl og sparar fólki og fyrirtækjum ómældan kostnað og tíma. Hjá bönkum og sparisjóðum verður til dæmis hægt að undirrita stærri millifærslur fjár. Rafrænar undirskriftir tryggja heilleika gagna og hjálpar til við rekjanleika í samskiptum.´ Handhafi skilrkjanna þarf að hafa debetkort með rafrnæum skilríkjum og kortalesara sem tengist tölvu ásamt sértækum hugbúnaði. Þegar persóna auðkennir sig gagnvart þjónustu þriðja aðila getur tölvan lesið rafræna skilrkið af bankakortinu með lesaranum og hugbúnaði honum tengdum. Stefna og vottunarframkvæmd Auðkennis fyrir prófunarskilríki Auðkennis (.pdf)
Skilríki.is Pin númer fyrir kortið er 12345678 og mælt er sterklega með því að þið breytið því við fyrsta tækifæri. Aðeins er hægt að nota tölustafi. Hægt er að finna rekla (driver) á heimasíðu Gemplus, hér. |