Auðkennislyklar 
  - Spurt og svarað. 
  - Kynningarefni 
 Rafræn Skilríki 
  - Spurt og Svarað 
 Um okkur 
  - Markmið 
  - Eigendur 
  - Starfsmenn 
 Gagnasafn 
 Skráningarstöðvar 
 Verðskrá 
 Fréttir 
 Áhugavert efni & tenglar 



Spurt og svarað – Auðkennislykill

 

Auðkennislykill - tækið

 

Hvernig fæ ég upp númer á skjáinn?

Þú kallar fram númerið með því að ýta á gúmmíhnappinn á hliðinni á lyklinum.

 

Hvernig fæ ég strax upp nýtt númer á skjáinn?

Með því að halda inni gúmmihnappnum hverfur núverandi númer af skjánum, síðan er ýtt á hnappinn aftur til að fá nýtt númer.

 

Hvernig virkar tæknin?

Hver lykill framkallar númer úr fyrirfram ákveðinni, dulkóðaðri, númeraröð.  Þessi númeraröð er einnig til á miðlara, sem hýstur er hjá Reiknistofu Bankanna(RB).  Í hvert sinn sem lykillinn er notaður til innskráningar í netbanka er uppfært í lyklinum og á miðlaranum hvar í númeraröðinni notandi er staddur. Ef númer er kallað fram á lyklinum án þess að það sé notað til innskráningar getur komið upp vandamál, þar sem miðlarinn og lykillinn eru ekki sammála um hvar í röðinni notandi er staddur.  Þá þarf að fara fram samstilling, en þá gefur notandi upp tvö mismunandi auðkennisnúmer.

 

Hversu mikið þolir auðkennislykilinn?

Auðkennislykillinn þolir takmarkað hnjask og notendur beðnir um að hafa það í huga.

 

Hvaða tæki eru í boði?

Í dag eru einungis auðkennislyklar í boði. Fljótlega verður þó boðið upp á að hafa lesara sem lesa kreditkort með örgjörva.

 

Kemur ekki upp númerið þó svo að ýtt sé á takkann?

­Ef erfitt reynist að framkalla númerið þá getur þessi tiltekni auðkennislykill verið gallaður. Þá þarf einfaldlega að snúa sér að næsta útibúi og fá nýjan lykil.

 

 

Hvað getur farið úrskeiðis?

 

Mér hefur ekki borist auðkennislykill í pósti.

Auðkennislyklarnir eru sendir út til allra í lotum. Auðkennislykill mun berast þér á næstu vikum.

 

Hvað gerist ef auðkennislykillinn er ekki til staðar?

Ef lykillinn er ekki til staðar er hægt að nota varaleið með því að biðja um að auðkennisnúmer sé sent sem SMS í farsímann þinn.

 

Hvað gerist ef ég týni auðkennislyklinum?

Ef lykillinn týnist þá þarf að hafa samband við útibú í þínum viðskiptabanka og fá nýjan lykil. Gjald fyrir nýjan lykil fer eftir verðskrá bankans hverju sinni.

 

Af hverju og hvernig læsist lykillinn?

Þegar vitlaust númer er skráð inn þrisvar sinnum í innskráningu er farið aðgerð sem kallast samstilling og er notandi þá beðinn um tvö auðkennisnúmer. Ef þessi tvö númer eru einnig röng læsist lykillinn.

 

Hvernig kalla ég fram nýtt númer fljótt?

Með því að halda inni hnappinum í um þrjár sekúndur slokknar á auðkennislyklinum. Nýtt númer er þá hægt að fá með því að ýta á hnappinn á nýjan leik.

Hvað á að gera ef lykillinn læsist?

Til aflæsa lyklinum þarf að hafa samband við þjónustuver bankans, eða fara í næsta útibú.

 

 

Notkun – hvernig virkar þetta fyrir sig?

 

Hvar er hægt að nota auðkennislykilinn?

Í innskráningu á netbankanum hjá öllum bönkum og sparisjóðum.

 

Hvernig skrái ég á mig auðkenni?

Með því að fara inn í netbankann og velja þar aðgerðina Virkja auðkenni .

 

Er hægt að nota vinnulykilinn sem einstaklingur og öfugt?

Auðkennislykilinn er skráður á hvern einstakling þannig að hægt er að nota sama lykilinn í fyrirtækjabanka fyrirtækisins sem einstaklingurinn hefur aðgang og á sinn eigin persónulega netbanka.

 

Hvernig skrái ég mig fyrir varaleiðinni?

Inn í netbankanum er hægt að velja hvort notast eigi við varaleið í gegnum SMS sendingu og skrá inn númer farsíma ef það er ekki fyrir hendi.

 

Hvað nákvæmlega breytist við tilkomu þessarar öryggislausnar?

Við innskráningu í netbanka þarf að skrá inn viðbótar auðkennisnúmer í stað eingöngu notandanafns og lykilorðs áður. Með þessu þarf að hafa við hendina auðkennislykilinn til að komast inn í netbankann.

 

Þarf að notast við öryggisnúmer þegar greitt er ef auðkennislykillinn er notaður?

Með tilkomu auðkennislykilsins breytist eingöngu innskráning í netbanka þannig að staðfesting greiðslna með núverandi öryggisnúmeri helst óbreytt.

 

Af hverju dugar ekki bara notandanafn og lykilorð lengur?

Miðað við núverandi netumhverfi er hætta á því að tölvuþrjótar geti komist yfir notandanöfn og lykilorð með ólöglegum hugbúnaði sem settur er upp á tölvur viðskiptavina. Með þessu komum við í veg fyrir að þeir geti misnotað þessar upplýsingar með síbreytilegu auðkennisnúmeri.

 

Til hvers er verið að gera þetta?

Koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón viðskiptavina.

 

Hversu lengi lifir númerið?

Númerið lifir í 45 sekúndur í einu en engu skiptir þó sá tími líði, það þarf einfaldlega að ýta á hnappinn aftur til að fá nýtt númer.

 

Þarf að slá inn núllið sem er fremst?

Já, það þarf að slá inn alla tölustafina í númerinu ásamt núllinu sem er fremst.

 

Hvernig er best fyrir mig að geyma lykilinn?

Á auðkennislyklinum er lyklakippuhringur sem hægt er að festa við lyklakippu hvers og eins ásamt því að bera um hálsinn líkt og gert er með starfsmanna skírteini í mörgum fyrirtækjum o.s.frv.

 

Er hægt að hafa tvo eða fleiri lykla í einu?

Hver og einn getur aðeins haft einn auðkennislykil. Með tilkomu kortalesara verður hægt að vera með kortalesara og auðkennislykil.

 

Er skylda að nota auðkennislykill?

Framan af verður valkvætt að nota auðkennislykilinn en að öllum líkindum verður þetta skilyrt fyrir alla notendur síðar.

 

 

Annað

Hver er kostnaðurinn við þetta?
Notendur greiða ekkert fyrir fyrsta auðkennislykilinn. Ef að lykill týnist er hægt að fá nýjan lykil gegn vægu gjaldi.

 

Eru einhverj færslugjöld innheimt við notkun lykilsins?
Notkun á auðkennislyklinum er gjaldfrjáls, engin færslugjöld eru innheimt.

 



Rafræn skilríki fyrir Skattinn og Tollinn
Nánar

Hafðu samband Prentvæn útgáfa Hafðu samband Prentvæn útgáfa Hafðu samband