Auðkennislyklar 
  - Spurt og svarað. 
  - Kynningarefni 
 Rafræn Skilríki 
  - Spurt og Svarað 
 Um okkur 
  - Markmið 
  - Eigendur 
  - Starfsmenn 
 Gagnasafn 
 Skráningarstöðvar 
 Verðskrá 
 Fréttir 
 Áhugavert efni & tenglar 



Auðkennislykill

Fjármálafyrirtæki eru í fararbroddi í vefviðskiptum á Íslandi. Hafa þau ávallt lagt mikla áherslu á að tryggja öryggi viðskiptavina sinna og eru sífellt að leita nýrra leiða til þess. Til að auka öryggið enn frekar stofnuðu hérlendir viðskiptabankar og sparisjóðir árið 2000 félagið Auðkenni sem sérhæfir sig í öryggismálum og rafrænni auðkenningu notenda. 

 

Það hefur færst í vöxt síðustu misseri að reynt sé að brjótast inn í tölvur einstaklinga og fyrirtækja með þeim ásetningi að opna sér leið inn í netbanka eiganda. Þótt tilfellin séu ennþá fá hér á landi er brýnt að koma í veg fyrir slíka háttsemi. Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) gáfu á síðasta ári út leiðbeiningar um hvað ber að varast við meðferð aðgangsupplýsinga og hvaða búnað ber að hafa til að verjast tölvuþrjótum. Voru þær birtar á heimasíðu samtakanna, www.sbv.is, og í öllum netbönkum. Í kjölfarið var ákveðið að ganga enn lengra í að bæta öryggi og taka í notkun nýja auðkennislykla sem öryggislausn fyrir netbankanotendur. SBV fólu Auðkenni að innleiða slíka auðkennislykla hér á landi. Hefur sú vinna verið í undirbúningi frá því í upphafi árs.

 

Í september 2006 hófst dreifing á auðkennislyklum til allra fyrirtækja á landinu.  Í kjölfarið verður síðan farið í dreifingu til allra einstaklinga.  Auðkennislyklar koma í tveim mismunandi útgáfum, annars vegar lykill sem gefur nýtt númer þegar ýtt er á hnapp á lyklinum, hins vegar kortalesari sem gefur nýtt númer þegar að notandi setur kreditkort með örgjörva í lesarann. Til að byrja með verða auðkennislyklar notaðir en búast má við kortalesurum á næsta ári.

 

Hér fyrir neðan má nálgast upplýsingabækling um auðkennislykilinn ásamt með svörum við helstu spurningum.

 

Kynningarefni

Spurt og Svarað

 

Nánari upplýsingar má fá hjá öllum viðskiptabönkum og sparisjóðum.

 



Rafræn skilríki fyrir Skattinn og Tollinn
Nánar

Hafðu samband Prentvæn útgáfa Hafðu samband Prentvæn útgáfa Hafðu samband