Auðkenni er hlutafélag stofnað í september árið 2000. Tilurð félagsins er sprottin af þörf fjármála- og fjarskiptafyrirtækja fyrir aukið öryggi í rafrænum viðskiptum. Auðkenni býður upp á alþjóðlegar lausnir í öryggismálum sem eru sniðnar að íslenskum aðstæðum. Starfsvettvangur Auðkennis er aðeins einn; öryggismál rafrænna viðskipta. Með þessu er tryggð sjálfstæð starfsemi, sem grundvölluð er á trausti og trúnaði. Þjónusta Auðkennis er boðin öllum þeim, er vilja auka öryggi í viðskiptum sínum í hinum rafræna heimi. Að baki Auðkenni standa helstu fjármálastofnanir landsins. Skrifstofur fyrirtækisins eru í Engjateig 3, 105 Reykjavík. Síminn er 580 6400 og faxnúmer 580 6401. Kennitölu og virðisaukaskattsnúmer Auðkennis hf ofl. upplýsingar má finna í Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. |