Starfsauðkenni eru stafræn skilríki sem ætluð eru til að auðkenna einstaklinga og stöðu þeirra innan ákveðins fyrirtækis, stofnunar eða félags. Í skilríkinu kemur fram nafn, kennitala, tölvupóstfang og heiti fyrirtækis, stofnunar eða félags.
Skilríkið getur viðkomandi notað í þeim viðskiptum og samskiptum sem hann þarf að sinna sem starfsmaður fyrirtækis eða stofnunar eða meðlimur félags. Skilríkið er m.a. hægt að nota til að: - Undirrita gögn með stafrænni undirskrift (byggðri á stafræna skilríkinu)
- Dulrita tölvupóst til að tryggja að óviðkomandi geti ekki lesið samskipti aðila
- Auðkenna sig gagnvart öðrum aðilum og heimasíðum
- Fá aðgang að vernduðum upplýsingum
Starfsauðkenni er með hátt öryggisstig (stig 3) þar sem þess er krafist að einstaklingur komi í eigin persónu í skráningarferlinu fyrir skráningaraðila þar sem hann færir sönnur á auðkenni sitt með framvísun persónuskilríkja. Starfsauðkenni eru studd af tryggingarstefnu Auðkennis. Samkvæmt henni nýtur sá aðili sem verður fyrir tjóni tryggingar upp að 37.500 evrum (u.þ.b. 3,3 milljónir ísl. kr.) sem verður vegna þess að treyst var á ranglega sannprófaðar upplýsingar í 3. stigs skilríkis. Vísað til til vottunarframkvæmdar Auðkennis og tryggingarstefnu um nánari upplýsingar sem hægt er að nálgast í gagnasafni Auðkennis. Starfsauðkenni eru gefin út til eins árs í senn og
í verðskrá
Auðkennis koma fram upplýsingar um verð. Sækja um Starfsauðkenni. |