Stafræn persónuskilríki Auðkennis - Persónuauðkenni - eru ætluð til að auðkenna einstaklinga. Í skilríkinu er nafn og tölvupóstfang viðkomandi einstaklings sannprófað auk þess sem skilríkið inniheldur kennitölu hans. Skilríkið geta einstaklingar notað í öllum almennum viðskiptum sínum og samskiptum. Skilríkið er m.a. hægt að nota til að: - Undirrita tölvupóst með rafrænni undirskrift (byggðri á rafræna skilríkinu)
- Dulrita tölvupóst til að tryggja að óviðkomandi geti ekki lesið samskipti aðila
- Auðkenna sig gagnvart öðrum aðilum og heimasíðum
- Fá aðgang að vernduðum trúnaðarupplýsingum
Persónuauðkenni er stafrænt persónuskilríki á háu öryggisstigi. Hátt öryggisstig (stig 3) krefst þess að einstaklingur komi í eigin persónu í skráningarferlinu fyrir skráningaraðila þar sem hann færir sönnur á auðkenni sitt með framvísun persónuskilríkja.
Persónuauðkenni eru studd af tryggingarstefnu Auðkennis.
Samkvæmt henni nýtur sá aðili sem verður fyrir
tjóni tryggingar upp að 12.000 evrum (u.þ.b. 1 milljón ísl.
kr.) sem verður vegna þess að treyst var á ranglega sannprófaðar
upplýsingar í 3. stigs skilríkis. Vísað til til vottunarframkvæmdar Auðkennis
og tryggingarstefnu um nánari upplýsingar. Persónuauðkenni eru gefin út til eins árs í senn og í verðskrá Auðkennis koma fram upplýsingar um verð. Sækja um Persónuauðkenni. |