Spurt og svaraš

Hvernig fę ég strax upp annaš nśmer į skjįinn?

Með því að halda inni gúmmihnappnum hverfur núverandi númer af skjánum, síðan er ýtt á hnappinn aftur til að fá nýtt númer.

Hvernig virkar tęknin?

Hver lykill framkallar númer úr fyrirfram ákveðinni, dulkóðaðri, númeraröð.  Þessi númeraröð er einnig til á miðlara, sem hýstur er hjá Reiknistofu Bankanna(RB).  Í hvert sinn sem lykillinn er notaður til innskráningar í netbanka er uppfært í lyklinum og á miðlaranum hvar í númeraröðinni notandi er staddur. Ef númer er kallað fram á lyklinum án þess að það sé notað til innskráningar getur komið upp vandamál, þar sem miðlarinn og lykillinn eru ekki sammála um hvar í röðinni notandi er staddur.  Þá þarf að fara fram samstilling, en þá gefur notandi upp tvö mismunandi auðkennisnúmer.

Hversu mikiš žolir auškennislykilinn?

Auðkennislykillinn þolir takmarkað hnjask og notendur beðnir um að hafa það í huga.

Žaš kemur ekki upp nśmer žó svo aš żtt sé į takkann?

­Ef erfitt reynist að framkalla númerið þá getur þessi tiltekni auðkennislykill verið gallaður. Þá þarf einfaldlega að snúa sér að næsta útibúi og fá nýjan lykil.

Kemst ég ķ heimbankann žó ég hafi ekki auškennilykilinn minn viš hendina?

Ef lykillinn er ekki til staðar er hægt að nota varaleið með því að biðja um að auðkennisnúmer sé sent sem SMS í farsímann þinn.

Hvaš į ég aš gera ef ég tżni auškennislyklinum?

Ef lykillinn týnist þá þarf að hafa samband við útibú í þínum viðskiptabanka og fá nýjan lykil. Gjald fyrir nýjan lykil fer eftir verðskrá bankans hverju sinni.

Af hverju og hvernig lęsist lykillinn?

Þegar vitlaust númer er skráð inn þrisvar sinnum í innskráningu er farið aðgerð sem kallast samstilling og er notandi þá beðinn um tvö auðkennisnúmer. Ef þessi tvö númer eru einnig röng læsist lykillinn.

Hvaš į aš gera ef lykillinn lęsist?

Til aflæsa lyklinum þarf að hafa samband við þjónustuver bankans, eða fara í næsta útibú.

Hvernig skrįi ég mig fyrir varaleišinni?

Inn í netbankanum er hægt að velja hvort notast eigi við varaleið í gegnum SMS sendingu og skrá inn númer farsíma ef það er ekki þegar skráð.

Er hęgt aš nota vinnulykilinn sem einstaklingur og öfugt?

Auðkennislykilinn er skráður á hvern einstakling þannig að hægt er að nota sama lykilinn í fyrirtækjabanka fyrirtækisins sem einstaklingurinn hefur aðgang og á sinn eigin persónulega netbanka.

Žarf aš slį inn nślliš sem er fremst?

Já, það þarf að slá inn alla tölustafina í númerinu ásamt núllinu sem er fremst.


AUŠKENNI - Borgartśni 31 - 105 Reykjavķk - Žjónustuver: 530 0000 - Skrifstofa: 580 6400 - Fax: 580 6401 - Netfang: audkenni(hjį)audkenni.is