Get ég haft rafræn skilríki á fleiri en einum síma?

Já, það eru engin takmörk fyrir því hvað þú getur haft mörg skilríki en þú getur þó aðeins haft eitt sett af þeim á hverju SIM-korti eins og er.

Eftir að Motorola Edge 20 farsímar uppfæra sig í Android 12 hættir SIM tool kit að virka.
Það hefur þau áhrif að rafræn skilríki virka ekki í þeim eftir þessa uppfærslu.

Motorola veit af vandamálinu og lofar nýrri uppfærslu fljótlega, ekki búnir að lofa neinni dagsetningu þó.

Sjá nánar hér:
https://forums.lenovo.com/t5/motorola-edge-20/SIM-Toolkit-doesn-t-work-after-update-to-Android-12/m-p/5141494

Ég slæ inn símanúmer á vefsíðu en það kemur aldrei valmyndin til að slá inn PIN númer. Hvað er til ráða?

Það gerist stundum að skilríkjavirknin í Android símum frjósi. Til að koma henni í gang má reyna eftirfarandi:

  1. Slökktu á símanum.
  2. Taktu SIM kortið úr símanum og settu það aftur í hann.
  3. Kveiktu á símanum.
  4. Hringja úr honum eða í hann eitt símtal.
  5. Bíða í lágmark 1 mínútu (mjög mikilvægt).
  6. Reyna aftur að nota skilríkin.

Ástæðan fyrir því að hringja eitt símtal og bíða í eina mínútu er til að tryggja að síminn sé örugglega skráður inn á farsímanetið.

Rafræn skilríki á farsíma hafa 5 ára gildistíma. Öllum notandum rafrænna skilríkja á farsímum er sent SMS og þeir varaðir við því að skilríkin séu að renna út og þeim bent að fara á næstu skráningastöð til að sækja um ný skilríki. Í þeim tilvikum þar sem skilríkjahafar eiga ekki kost á að mæta á skráningastöð eru mögulegar lausnir þar til viðkomandi kemst á skráningastöð Símaskilríki að renna út.

Ítarlegra svar

Ef skipt er um símafélag eða SIM kort á sama símanúmer og það sem inniheldur rafræn skilríki, eyðast þau sjálfkrafa. Skilríkin eru vistuð í mjög öruggri geymslu á SIM kortinu og ef skipt er um SIM kort á sama símanúmeri er skilríkjunum sjálfkrafa eytt. Notandi þarf þá að fara aftur á skráningarstöð með ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini og fá ný skilríki virkjuð.

Rafræn skilríki í farsímum virka bara með íslenskum farsímanúmerum. Það fer svo eftir því hvaða símafélagi þú ert hjá og hvernig reikisamninga þeir eru með í viðkomandi landi hvort skilríkin virka þar. Ef venjuleg SMS skeyti eru að virka ættu rafrænu skilríkin að virka líka. Reynslan er sú að rafrænu skilríkin eru að virka í langflestum löndum.

Nei, aðeins er hægt að fá íslensku rafrænu skilríkin á íslensk farsímanúmer.

Á vefnum netoryggi.is á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar eru góð ráð um hvernig best er að vernda farsímann sinn. 

Já, skilríkin er hægt að fá á nær allar tegundir farsíma. Síminn þarf ekki að vera snjallsími og síminn þarf ekki að geta vafrað á netinu. Rafrænu skilríkin eru sett á SIM kort farsímans og nota svokölluð kerfis SMS skilaboð. Þó svo síminn sé með lítinn einnar línu skjá og geti ekki vafrað á netinu getur hann virkað vel fyrir rafræn skilríki.

Tvær leiðir eru í boði:

1. Ef þú ert nú þegar með rafræn skilríki á farsíma þá getur þú afgreitt þig sjálf(ur) á vef okkar hér.

2. Þú getur farið til skráningarfulltrúa Auðkennis með ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini og hann aðstoðar þig við að setja skilríkin í símann. Sjá afgreiðslustaði og afgreiðslutíma Auðkennis hér.

Fyrst þarft þú að viss um að þú sért með SIM kort í farsímanum sem styður rafræn skilríki.
Það getur þú gert hér: Kanna SIM kortið mitt.

Ef þú ert með hæft SIM kort þá ferðu á næstu skráningarstöð og hefur með þér löggild persónuskilríki, vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini og lætur skráningarfulltrúa virkja skilríkin.
Sjá lista yfir allar skráningarstöðvar.

Ekki er hægt að virkja skilríkin á farsíma í sjálfsafgreiðslu á vefsíðum Auðkennis nema þú sért þegar með rafræn skilríki frá Auðkenni á öðru SIM-korti.  Ef þú ert með rafræn skilríki getur þú virkjað skilríkin í farsímanum í sjálfsafgreiðslu á vef okkar hér:

Já, það eru engin takmörk fyrir því hvað þú getur haft mörg skilríki en þú getur þó aðeins haft eitt sett af þeim á hverju SIM-korti eins og er.

Ef PIN gleymist eða er slegið inn rangt oftar en fjóru sinnum þarf að fara á eina af skráningarstöðvum Auðkennis með gilt ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini og fá ný rafræn skilríki hjá skráningarfulltrúa. 

Ef rangt PIN númer er slegið inn oftar en fjóru sinnum þá læsist PIN númerið og í sumum tilfellum afturkallast skilríkin. Ef PIN læsist eru skilríkin ónýt. Til að fá ný þarf að fara á skráningastöð með ökuskírteini, vegabréf eða íslenskt nafnskírteini til vottunar. Skráningastövar eru í öllum bankaútibúum og mörgum símabúðum.

Nova, Síminn, Vodafone, Hringdu og Hringiðan bjóða viðskiptavinum sínum upp á SIM-kort sem styðja rafræn skilríki í dag.

Nei, þetta eru ný skilríki. Það eru engin takmörk fyrir því hvað þú getur haft mörg skilríki í einu á símum eða Auðkenniskortum. 

Það er afar einfalt að nota rafræn skilríki á farsíma. Hafðu símann við höndina tilbúinn og ólæstan. Hér eru leiðbeiningar um innskráningu á vef Heilsuveru:

  1. Á vefnum heilsuvera.is er Heilbrigðisgáttin þín undir fyrirsögninni Mínar síður.  Þar velur þú hnappinn Innskráning.
  2. Í innskráningarglugga slærð þú símanúmerið þitt inn og velur Innskrá, en þá hefst ferli á farsímanum.
  3. Á farsímanum koma upp skilaboð um innskráningu.  Þar velur þú OK eða Accept.
  4. Að lokum slærð þú  PIN númerið þitt inn í farsímann og velur OK eða Send.
  5. Að þessu loknu ætti að opnast fyrir þínar síður í Heilsuveru.
  6. Sjá nánar

Hér eru 3 möguleikar:

1. Hafðu samband við þitt símafélag og fáðu þá til að loka SIM-kortinu í símanum en þá afturkallast skilríkin sjálfkrafa og verða ónothæf.

2. Hafðu samband við Auðkenni og við lokum skilríkinu fyrir þig.

3. Ef þú átt önnur rafræn skilríki getur þú skráð þig inn með þeim og afturkallað skilríkin sjálf(ur).

Já, skilríkin á SIM-kortunum hafa engin áhrif á skilríkin á Auðkenniskortum.

Það er ekki alveg víst að þú þurfir að skipta um SIM-kort. Á þessari prófunarsíðu getur þú kannað hvort þitt SIM-kort sé hæft fyrir rafræn skilríki. Ef setja á rafræn skilríki á SIM-kort þarf það að uppfylla ákveðnar kröfur sem eldri SIM-kort gera ekki.

Við bjóðum sérstaka prófunarsíðu fyrir þig, þar getur þú prófað skilríkin þín.

Á þessari prófunarsíðu getur þú kannað hvort þitt SIM-kort sé hæft fyrir rafræn skilríki.

Já, allir íslenskir viðskiptabankar og sparisjóðir bjóða upp á rafræna innskráningu í netbanka.

Nei, þetta PIN-númer er alveg sjálfstætt og óháð öðrum PIN-númerum. Gættu þess að PIN-númerið er lykilatriði í öryggi skilríkjanna. Því skaltu ekki nota númer sem er öllum aðgengilegt og tengist persónu þinni, s.s. hluta úr kennitölu eða símanúmers. 

Á flestum farsímum öðrum en iPhone er farið í VIT-valmyndina (heitir stundum SIM Toolkit) og þar undir er Auðkenni og undir því er Breyta PIN möguleiki.
Í iPhone er farið í Settings og svo í Mobile Data og þar neðst er SIM Application. Þar inni er Auðkenni og undir því er Breyta PIN möguleiki. Sjá nánari leiðbeiningar hér

Rafræn skilríki í farsíma eru afskaplega einföld og þægileg í notkun. 

1. Þú slærð inn símanúmer þitt í þar til gerðan reit á vefsvæði þjónustuveitanda

2.  Upp kemur í símann valmynd sem biður þig um að staðfesta auðkenningu eða undirritun. Samþykktu til að halda áfram í næsta skref.

3. Upp kemur í símann gluggi til að slá inn PIN. Sláðu inn PIN og veldu að samþykkja.

4. Auðkenning eða undirritun fer fram!

Gætið þess að samþykkja aldrei beiðni um auðkenningu eða undirritun né slá inn PIN nema þegar verið er að nota skilríkin. 

Nei, þú getur aðeins haft eitt auðkenningarskilríki og eitt undirritunarskilríki á hverju SIM-korti.

Já, næstum því, það eru aðeins nokkrar tegundir sem styðja ekki skilríkin. Sjá lista.

SIM-kort fyrir rafræn skilríki eru sérsniðin að skilríkjalausn Auðkennis. Þau innihalda sérstaka dulmálseiningu og smáforrit sem stýrir samskiptunum við rafrænu skilríkin sem vistuð eru á þeim.

Já, ef þú ert nú þegar með rafræn skilríki á SIM korti í farsíma (sem voru virkjuð á skráningastöð) getur þú farið á mitt.audkenni.is og búið til ný skilríki á annað símanúmer sem hefur ekki rafræn skilríki. Þú getur ekki búið til ný skilríki á sama símanúmer og þú skráðir þig inn með.