Leiðbeiningar fyrir Linux notendur

Til að nýta rafræn skilríki á kortum þarf að tengja kortalesara við tölvuna og setja upp Nexus personal hugbúnaðinn til að lesa kortið. Hér fyrir neðan er listi yfir þau atriði sem huga þarf að.

1. KORTALESARI

Tengdu kortalesara við USB-tengið í tölvunni, nema þú hafir innbyggðan kortalesara í henni. Í langflestum tilfellum finnur tölvan réttan rekil sjálfkrafa á svipaðan hátt og þegar nýr prentari er tengdur.

2. SETJA UPP NEXUS PERSONAL

Til þess að lesa kortið í kortalesaranum þarftu að setja upp Nexus Personal forritið. 

Sækja Nexus Personal fyrir Linux 

3. SETJA SKILRÍKI Í LESARANN

Stingdu kortinu með rafrænu skilríkjunum í lesarann þannig að örgjörvinn snúi upp og að lesaranum. Þegar kortalesarinn les skilríkin þá ætti „Personal-táknið“ á neðstu stikunni að snúast í hringi.

4. RÆSA FIREFOX VAFRANN

Nú skaltu ræsa Firefox vafrann, ef hann er þegar keyrandi skaltu slökkva á honum og ræsa hann aftur.
Næst getur þú prófað að skrá þig t.d. inn í netbankann þinn eða prófað skilríkin með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Mundu að þú átt aðeins að nota fyrstu 4 tölustafina í PIN-númerinu fyrir auðkenningu. Prófa rafræn skilríki á korti.

TÆKNIÞJÓNUSTA AUÐKENNIS

Ef þér tekst ekki að fá rafrænu skilríkin til að virka getur þú hringt í 530 0000 alla virka daga frá 9:00 til 17:00 og fengið ókeypis aðstoð sérfræðinga. Athugið að miðað er við að símtöl taki ekki lengri tíma en tíu mínútur.